Sýna á víst myndbandið hennar Silvíu Nóttar (!) í sjónvarpinu í kvöld.
Þeir sem nenna ekki að bíða (eða eru uppteknir við annað) geta líka séð það hér.
Hún er merkilega skemmtileg hún Silvía. Ég hlæ í það minnsta að henni.
Glottir eins og fífl
Get að auki mælt með að sjá myndbandið í sjónvarpinu. Þá koma litirnir miklu betur í ljós og þessi myndataka nýtur sín betur. Þessi útgáfa er yfirlýst að miklu leyti, þ.e. hvítir litir eru að kæfa aðra mjög víða.
ég held að ég sleppi því að horfa á þetta
En er ekki aðalspurningin: er hún sexy?
En er ekki aðalspurningin: er hún sexy?
Já
Ein spurning: Kom Egill Eðvarðsson að gerð sviðsmyndar?
Eftir bestu vitund þá mun svo ekki vera þrátt fyrir augljósa tilvísun leikmyndarinnar í korkspjaldastóðið á hjólunum.
Þú virðist þekkja inn á þennan bransa að einhverju leyti Bobby og langar mig því að forvitnast um eitt.
Af hverju fær Egill Eðvarðsson að gera svona margar sviðsmyndir?
Hefur hann einkarétt á sviðsmyndum hjá Rúv?
Er ekki hægt að reka manninn?

Hann Egill er ekki með einkarétt á leikmyndagerð. Mér er voðalega illa við að giska á hvað lá að baki en kannski langaði manninum að prófa.
Það er ekki eins og það hafi verið gefinn langur tími til andlitslyftingar á Kastljósþætinum. Kannski voru hinir í fríi eða uppteknir við annað akkúrat á þessum tíma?
Það var allt of mikið af litum hvað varð eignlega um Íslensku hefðina að notast bara við sauðalitina. Brúnan, svartan, hvítan og gráann.
Það verður á næsta ári, þá sendum við Hjálma! Ljómar upp en vonar samt að þeir láti ekki hafa sig útí svona vitleysu
Það má vel vera að hún þyki bera með sér mikinn kynþokka enda dressuð og máluð einsog blanda af portkonu og hefðarfrú, en ekki get ég tekið undir að hún sé "æði", í besta falli hægt að umbera stælana í henni. Réttast væri að flengja þetta... vasabiljarð

Heyr Heyr. Hér kom maður með viti