Ég ákvað að skrá mig í skyndi eitt skiptið þegar ég var að ráfa hér um. Og mér líst svakalega vel á þetta.
Góðan daginn. Hverra manna ert þú? Ertu nokkuð ættaður úr Syðri-Sveit?
Þetta sagði nafni þinn líka um fyrsta heróínskammt sinn.
Ekki að ég sé að kvarta - ég er í meira lagi hamingjusamur fíkill. Vertu velkominn, og megi fíkn þín verða þér gjöful.
Faðir minn var skósmiður og móðir mín húsmóðir. Mig langar svolítið að benda á það að ég er kvenkyns, þótt nafnið sé fengið af karlkyns persónu úr kvikmynd. Og þakka þér Þarfagreinir.
Já hæ, velkomin, viltu kex? Býður upp á kex
Ég treysti á þig að halda hinu göfuga nafni heróínfíkilsins og fasteignasölumannsins Renton á lofti og finna þér glæsilega mynd við hæfi. Ef þú værir karlmaður myndi ég renna til þín hýru auga. Æi, what the hell:
Rennir til Rentons hýru auga
Vertu velkomin.
Ég treysti á þig að halda hinu göfuga nafni heróínfíkilsins og fasteignasölumannsins Renton á lofti og finna þér glæsilega mynd við hæfi. Ef þú værir karlmaður myndi ég renna til þín hýru auga. Æi, what the hell:
Rennir til Rentons hýru auga
Vertu velkomin.
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
PS Vjer bjóðum nýliða þennan velkominn með hefðbundnum fyrirvörum.
Helvíti þurfa nýliðar að gera lítið og ómerkilegt til að falla í kramið hjá eldri Gestapóum núorðið.
Kinkar kolli og samsinnir Ísaki.
Ekki er nú öll vitleysan eins hnussar. Áttu kannske ættir að rekja í Sóldalinn, kvensnift? Tvíhnussar
Horfir strangur á nýliðann Mundu bara að haga þér vel, temja þér vandað mál og fargurt og koma kurteislega fram við þér eldri og reyndari menn(karla og konur).
Annars heiti ég Sundlaugur Vatne, sundkennari. Þú lest kannske atvinnuauglýsingu sem er nýbúið að birta á þræðinum "Tilkynningar".
Mælir Renton út og veltir því fyrir sér hvort hún sé vöðvastinn og dugandi og hæf eiginkona og barnsmóðir einhvers einhleyps Ýsfirðings.
En hvað þetta er snubbótt og óljós kynning. Segir mér minna en Hæ! Hér er ég! Komms bonns og húsaknús á alla! Viðbjóður. Lætur frá sér fara orðaflaum af fúkyrðum og sparkar grimmilega í nálægan stól
Afsakið. Ég bara kann ekkert að kynna sjálfa mig þar sem ég veit voðalega lítið um hver ég er.
Þú átt eftir að skapa þig á þessu svæði. Gerðu það.
Ég sé að þú virðist þó hafa ágætis vald á íslensku ritmáli og er það vel.
Mundu bara að haga þér og lesa nýliðaleiðbeiningar.
Ef þú gerir það ekki verður þér lógað.
Vertu annars hjartanlega velkomin Renton.
Velkomin, hlakka til að lesa þig.
Bendir á Renton
Eru þessi ekta ? Bendir á Lois Vitton töskunaStarir þegjandi út í loftið
Sæl, Ég er Hvæsi, vertu velkomin svo framarlega að þú virðir hér lög og reglur og hlustir á hann Sundlaug.
Hérna, togaðu í puttann á mér.
Réttir út vísifingur
Velkominn Bíður spenntur eftir að Renton togi í puttan á hvæsa
Ég þakka móttökurnar og mun að sjálfsögðu leggja hart að mér við að haga mér vel.
Togar í vísifingurinn á Hvæsa
setur upp gasgrímu