Uuuuu...það bara passar ekki við búininginn. En fer þér að öðru leyti vel.
Og hvað næst..... ha?
Hvar endar þetta Haraldur?
Viltu kannski að ég fari að baða mig, bursta tennurnar, raka mig undir höndunum og ganga í brjóstarhaldara á almannafæri?
Karlrembusvín!
Syngur blíðlega gamalt lag með Fræbblunum
♪Í nótt, í nótt...♪
Samkvæmt nýjustu tíðindum frá Hollywood, dreymir Sharon Stone um að kynnast lúða. Þetta eru hinn mestu gleðitíðindi fyrir allan karlpening hér á Gestapó; við eigum þrátt fyrir allt sjens!
Ég á pottþétt ekki séns.
Ég sá sýnishornið úr Basic Instinct 2 á einhverri mynd um daginn. Ég var sá eini sem hló í salnum.
Er hún þá svona hrikalega hrukkótt að neðan??
Hey hver er bestur ef ekki ég ?
Ég er náttúrulega bestur og síðan eru kannski svona sex milljarðar á milli okkar, nenni bara ekki að telja þá alla upp.
Ahh, einmitt þráðurinn sem ég var að leita að, hafðu þökk fyrir Haraldur. Ég ætla að fá hjá þér eina básúnu og tvö trompett, skrifar þetta bara á mig.
Hún Sharon er örugglega að fara að leggjast til hinstu hvílu og vill friða samviskuna með góðverki.
Hún Sharon ?! Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Vitið þjer eitthvað ísraelska stjórnmálamenn er eigi er á allra vitorði ?
Ahh, einmitt þráðurinn sem ég var að leita að, hafðu þökk fyrir Haraldur. Ég ætla að fá hjá þér eina básúnu og tvö trompett, skrifar þetta bara á mig.
Skríkir af kátínu
Fjórum dögum síðar fatta ég þennan brandara en hvað er eitt r milli vina?. Helvíti góður bara.
?? Fattar ekki neitt Blótar herfilega og rífur hár sitt Ég hlýt að vera heimskur lúði. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Aha! Blæs í lúðra Var að leita að slíku, en fann ekki. Er einhver búin að leiðrétta?
Aha! Blæs í lúðra Var að leita að slíku, en fann ekki. Er einhver búin að leiðrétta?
Nahh, Gúlmur er bara bleslidnur.