Aulinn ætlar að reyna að mæta, ef ekki á tónleikana þá verður hún pottþétt hjá Þarfa áður. 1500 kr? Snöktir Ég er fátækur námsmaður!
Já, handlegg og fótlegg, eins og ég þvældi útúrmér fyrr á þræðinum. Er ekki samt vinsælt að selja kossa fyrir verðugum málefnum? Horfir út í loftið og dæsir
Aulinn ætlar að reyna að mæta, ef ekki á tónleikana þá verður hún pottþétt hjá Þarfa áður. 1500 kr? Snöktir Ég er fátækur námsmaður!
Já, handlegg og fótlegg, eins og ég þvældi útúrmér fyrr á þræðinum. Er ekki samt vinsælt að selja kossa fyrir verðugum málefnum? Horfir út í loftið og dæsir
Bíddu, er þetta hugmynd fyrir aulann eða tilkynning frá þér?!
Hmmm... ég verð víst að játa á mig innleggið hér fyrir ofan...
Hmmm... ég verð víst að játa á mig innleggið hér fyrir ofan...
Hví spyrðu? Langar þig kaupa koss frá mér?
Dæsir
Ég var víst búin að lofa mér í að passa grislinga í kvöld, áður en ég vissi af köntríballi... annars hefði ég tjúttað í kvöld.
Ég myndi nú aldrei tjútta við kántrí. En ég hefði haft gaman af því að mæta. Það mun ég þó ekki gera.
Hvurjir munu mæta á fyrirhódánsþing hjá Þarfa í kvöld? Stekkur hæð sína yfir að ætla á Þarfaþing og hódán
Ég mæti! Og ætla að verða vel ölvuð af.... breezer! Bannað að gera grín af mér!
Fyrir þá sem hafa áhuga að bera augum sauðdrukkið Tígrisdýr gefst tækifæri til þess í kvöld.
Bæði á Þarfaþingi sem og hódáni á Nasa.
Hmmm... ég verð víst að játa á mig innleggið hér fyrir ofan...
Hví spyrðu? Langar þig kaupa koss frá mér?
Jah, það er spurning hvað maður leggur á sig fyrir fólk í nauðum!
Ég er alla vega farin af stað, ævintýri kvöldsins fara að byrja, veiiiiiii! dansar línudans út af sviðinu með fagran drykk í hönd
Sjáumst í kvöld krakkar!
Andskotans, djöfulsins. Landsbyggðarúrrhrakið ég á ekki heimangengt fyrr en helgina þar á eftir. Ég heimta að þessu verði frestað til að ljóslifandi kántrírauðhálsinn og kúasmalinn Haraldur Austmann geti mætt.
Annars mæti ég ekki!
Ég er nákvæmlega sammála honum Haraldi... helgin þar á eftir er mun hentugri þar sem ég verð í bænum líka...
Stelum helvítis tímavjelinni Skabbi. Við megum vera fullir á henni.
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Enginn skal stela tímavjel vorri. Aldrei !
He he. Búnir að því. Þetta bara virkar ekki. Hvar er lykillinn?
Setur fjarstýringuna í 'gjörgæslu'
Síðan förum vjer hjer með formlega fram á að verði í kvöld vart við þá óvini ríkisins er gerðu á oss sýklavopnaárás á miðvikudagskvöld verði þeir hinir sömu handteknir Beinir nær öllum njósna- og eftirlitsbúnaði Baggalútíu að Gestapóvelli og nágrenni.
Eru allir komnir á þingið?
Ég er kominn, en ekki fleiri. Voðalega mætir fólk alltaf seint hér á landi. Nú eru rétt tæpir þrír og hálfur tími þar til að tónleikarnir hefjast, og því ekki mikill tími til drykkju eftir.
Ræðst á sturtuhausinn og stendur í allblautum slagsmálum í nokkurn tíma. Vinnur þó bardagann og íhugar að nýta sér leigusamgöngur á Þarfaþing
Var einhver forsala á hódánið? Næ ég ekki alveg örugglega í miða??? skelfist
Það var engin forsala - og ég er ekki með miða. Ég tel þó 95% líkur á því að allir sem vilja fái miða í kvöld.
Finnur Frakka frænda og vefur honum utan um sig Skildist þetta nokkuð? Glottir eins og fífl
Verð mættur á svæðið eftir rúmar 20 mínútur! Búinn að athuga með leigusamgöngur og sögðust forsvarsmenn þeirra ætla að ganga í málið án tafar! xTxTxTStekkur hæð sína