Nú þarf maður að fara að gera skattaskýrsluna, er einhver með góð ráð til skattsvika?
Já, skila skýrsluni. Hér tala menn af reynslu, eitt árið gleymdi undirritaður að skila og fékk áætlun all ríflega.
Nú í ljósi þeirrar áætlunar fékk ég til aðstoðar endurskoðandann minn (var í minniháttar rekstri) og var skýrsluni skilað.
En í kjölfarið var hún að sjálfsögðu vandlega skoðuð að blýantsnögurum og möppudýrum, enda líklega ekkert betra að gera á þeim bænum, búnir að fara yfir allar hinar skýrslurnar.
Þannig fór að gerðar voru athugasemdir við fjölmarga liði í efnahagsreikningnum sem örugglega hefðu fengið að standa hefði ég skilað á réttum tíma.
Lærdómurinn er því: Skilaðu skýrsluni. xT
Vera í svartri vinnu og eiga ekkert..... þá er þetta fljótgert og því mun meiri tími í ákavítið. Ljómar upp
Einfaldast er að ráða sjálfur uppbyggingu skattkerfisins Ljómar upp og horfir með velþóknun yfir ráðherra- og embættismannalistann þar sem ríkisskattstjóri (Hilmar Harðjaxl) heyrir undir hasarmálaráðherra (Mosu frænku).
Það er langvinsælast að skeina sér með skattframtalinu morguninn eftir stíft fyllerí á mexíkönskum veitingastað.
Það er langvinsælast að skeina sér með skattframtalinu morguninn eftir stíft fyllerí á mexíkönskum veitingastað.
Sá siður hlýtur að fara halloka nú á tímum rafræns framtals.
Nöldrar eitthvað um að heimur fari versnandi og að þetta sé ekki eins og það var hér áður fyrr þegar kókosbollur uxu á trjánum og fólk pissaði gulli
Eitt sinn fékk ég mér vasknúmer vegna framtals á viku fyllerísferð um hálendið á kostnað ríkisins.
Það er langvinsælast að skeina sér með skattframtalinu morguninn eftir stíft fyllerí á mexíkönskum veitingastað.
Sá siður hlýtur að fara halloka nú á tímum rafræns framtals.
Nöldrar eitthvað um að heimur fari versnandi og að þetta sé ekki eins og það var hér áður fyrr þegar kókosbollur uxu á trjánum og fólk pissaði gulli
Þá er bara að prenta það út og senda það einnig.