Mitt líf er hið hverflynda haf. Ég á heima á ólgandi mar, því að neistann sem náttúran gaf af náð fæ ég haldið í þar. Þeir kenna mér keisarans mátt, ef ég kraka við fjörunnar sand. Út þá á ægisund blátt! Ég á ekki und fótum mér land!
Starir þegjandi út í loftið
Ljómar upp[/code][/s]
Snjáð er súldruð silkislæða síþekjunnar. Í hrunadansi hverfulleikans er byrgi ærunnar sjaldnast skjól gegn mulningságangi tímans.
Horfir tilgerðarlega út í loftið
Sárt er að sitja í sífreranum og vont er að velkjast eins og einfrumungur í öldurótinu, í sandöldum svíður mitt hörund en gimsteinar glóa í gerfiveröld.
Starir þegjandi út í loftið
Ó, finnið mér gröf þar sem fjúkið er mest, ef flensan mér grandar. Niðrí fjöru við sjó á ég fiðraðan hest í fjaðurham andar. Nú leggst ský yfir grund eins og gamalkunn pest, grána þá sandar.
Fyllist mærð
Já, vertu velkomin, Hekla. Með fyrirvara um vandað mál og kurteisi.
Virðir nýliðann fyrir sér úr hæfilegri fjarlægð.
Ég kann ekki svona japönsku en ég er viss um að þetta sé bara nokkuð gott.
Velkomin.
Spilaru nokkuð krikket?
Ljómar upp
Sælir! Ég skil japönskuna ekki heldur, ég var ekki heiðarleg er ég kynnti mig roðnar og lekur í gegnum gólfið Ég er í raun bara venjuleg ævintýradís og aðaláhugamál mín eru töfrar Brestur í óstöðvandi grát Ég er ekki gáfnaljós og verð það seint, ef mér er ætlað það hlutverk. Datt mér það snilldarráð í hug að kynnast ykkur, snillingum Íslands og læra eitthvað af ykkur. Ég þakka hlýjar móttökur, vona að þið getið fyrirgefið mér- og að mér hlotnist sá heiður að verða ein af ykkur hugsar útí að naga nögl en gerir það ekki.
Og nei, ég hef ekki spilað krikket. Ég spila lönguvitleysu og kasínu.
Velkomin Hekla. Hérna, togaðu í puttann á mér.
Potar vísifingri flissandi í áttina að Heklu
Hvíslar að Heklu (úr hæfilegri fjarlægð þó): Í öllum bænum ekki taka í puttann á honum!
Velkomin í, veraldarský, gakktu hér í, þetta fölbleika ský, fljúgðu svo frí, með kurt og pí, til Kanarí, og.. og.. Árans ritstíflan
Ljómar upp
Langavitleysa segirðu?
Þá ættirðu að hafa gaman að leiknum Hve mörg köst þarf til að ná 6 sexum? sem er mun lengri en langavitleysa og náskyldur krikketi.
Komdu sæl Hekla! Vertu hjartanlega velkomin, mér finnst þú ein af þeim bestu af þessum árans nýliðum.
Ég skal vernda þig!
Og já, ég er heldur ekkert gáfnaljós þó svo að ég þykist vera það.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Velkomin Hekla!
Vertu ekkert að afsaka þig.
Þú byrjaðir vel, haltu áfram á sömu braut.
Stendur ennþá stilltur með puttann útí loftið
Hvenar ætlaru að toga í puttann á mér ? Setur upp hvolpasvip
Velkomin í hóp hinna misgáfuðu Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri