Hvað segiði um það, hvalveiðar í atvinnuskyni. Er eitthvað vit í þessu?
Ég hef svo sem ekkert á móti því að drepa nokkur dýr mér til matar, en er einhver markaður fyrir þessi grey? Hver er gróðinn? Er ekki meiri gróði í ferðamannaiðnaðinum í kringum hvalaskoðun, nei ég spyr bara... Fær sér Ákavíti og hættir að rausa.
Er þetta ekki prinsipp mál, að við sem sjálfstæð þjóð megum drepa þau dýr sem við viljum, enda séu þau ekki í útrýmingarhættu. Svo geta túristarnir skoðað hræin.
Ég man reyndar eftir því - fyrir mörgum árum - þá var ég með fjölskyldu minni á ferð um Hvalfjörðinn (þá voru engin göng) og verið að verka hval í gömlu hvalstöðinni. Það var fullt af túristum að góna á það - jafnvel erlendum. Er þá ekki eins hægt að taka þennan sið upp aftur. Segja þetta hefðbundnar og gamaldags vinnsluaðferðir sem séu hluti af menningararfinum eða eitthvað.
Jú það er eitt með réttinn, að hafa rétt á að drepa þessi dýr er sjálfssagt, enda er hrefnukjötið herramanns matur ef því er að skipta.... En þá er það spurning, erum við að fórna meiri hagsmunum fyrir minni? Til að hrefnuveiði standi undir sig... þurfa bátarnir þá ekki að vera ríkisstyrktir, er það þess virði? Er hér komin enn eitt ríkisstyrkta báknið... samanber bændurna (sem hafa það skítt verð ég að viðurkenna)....
Til að það sé á tæru, þá er ég enginn grínpísari og hef í sjálfu sér ekkert á móti drápi dýra... en það er spurning með hagsmuni Íslands?
Reyndar er aðalhvalaskoðunarstaður Íslands... Húsavík... að fara að mála sig út í horn... því hvaða hvalaskoðari hefur yndi af því að sigla í gegnum álreyk til að skoða einhverja hvali...

Súrir hvalir eru hrikalega góðir. Svo mjúkir og safaríkir. mmmm
Maður fer nú bara að slefa... jú ætli það sé ekki rétt að veiða hval og helling af honum... pönnusteikt hrefnukjöt... jömmí... Slefar ofan í Ákavítisglasið sitt
Ég hef nú bara aldrei smakkað hval, enda hefur það alltaf verið bannað! Svoleiðis gengur ekki.
Don... Varstu að blikka mig... ég sé í gegnum gleraugun... Horfir iskyggilega á Don og sötrar Ákavíti með röri
Don... Varstu að blikka mig... ég sé í gegnum gleraugun... Horfir iskyggilega á Don og sötrar Ákavíti með röri
Nau Skabbi það var ég sem var að blikkaRoðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Það sem ég geri undir gleraugunum er mitt einkamál!
Það á að senda flotann út og plamma á þessi kvikindi
Það á að leyfa veiðar á hvölum og greenpíshippum. Hasarkennt sjónarspilið myndi auka túristaásókn umtalsvert.
Hins vegar verður að viðurkennast að markaðurinn fyrir ketið er varla til staðar lengur. Meira að segja Japanir eru farnir að gleyma ketinu sem þeir komust á bragðið með í skortinum eftir seinna stríð.
Kannski önnur heimsstyrjöld gæti hresst upp á hvalalystina.
Ég hef verið að vinna við hvalaskoðun 2 sumur í röð og sá bisníss getur sko alveg mokað inn peningum. Hef samt ekkert á móti hvalveiðum, ef forsendurnar eru nógu skynsamlegar.
Fannst samt ansi lélegt síðasta sumar þegar verið var að veiða hrefnur í rannsóknarskyni að bátarnir voru að veiða á sömu slóðum og hvalaskoðunin fór fram, þannig voru þeir að slátra gæfustu dýrunum sem voru gjarnan forvitin og komu alveg upp að bátunum, akkúrat hvalirnir sem skemmtilegast er að skoða. Á tveggja vikna tímabili eftir að veiðarnar hófust þá sást ekki kvikindi.
Annars skammast ég mín fyrir að hafa aldrei smakkað hrefnukjöt eða lunda.
er ekki hægt að selja hvalveiðiskoðunarferðir?mun meiri hasar í því heldur en einhver hvalaskoðunarferð
Ég myndi sko standa fremst í stafni með sprengiskutulinn og hníf á milli tannanna...