Nýhil minnir á að lokafrestur til að skila inn ljóðum í Íslandsmeistaramót Nýhils í ömurlegri ljóðlist rennur út á miðnætti í kvöld, áttunda mars.
Tekið verður tillit til asnalegra myndlíkinga, klaufalegs orðalags og ósmekklegs umfjöllunarefnis, auk annarra stílbragða ömurðarinnar sem dómnefnd þykir rétt að hafa til viðmiðunar.
Athygli skal einnig veitt á því að verðlaunaafhendingu hefur verið frestað um tvo daga, og verður ekki 15. mars eins og áður sagði, heldur föstudaginn 17. mars.
Meira hér: http://www.nyhil.org/frett.asp?id=399
Hey! Lestu nyhil Ljómar upp
Þessi keppni er sérhönnuð fyrir mig.ég kann sko ekkert í ljóðagerðLjómar upp
Þetta er kanski eitthvað sem ég ætti að skoða Stekkur hæð sína
Hvar er krummo núna?
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Tekið verður tillit til asnalegra myndlíkinga, klaufalegs orðalags og ósmekklegs umfjöllunarefnis, auk annarra stílbragða ömurðarinnar sem dómnefnd þykir rétt að hafa til viðmiðunar.
Það þarf nokkuð snjallt ljóðskáld til að uppfylla þessi skilyrði.
Ég vil hvetja Bölverk til að taka þátt.