Vegna fjölda fyrirspurna er borist hafa forsetaembætti Baggalútíu viljum vjer taka skýrt fram að sprenging (af falsmiðlunum kölluð 'jarðskjálfti') er varð við Krýsuvík fyrir nokkrum mínútum tengist hvorki tilraunum forsetaembættisins með gjöreyðingarvopn nje geimskip. Að öðru leyti er embættinu ókunnugt um málið og neitar að tjá sig um það Lætur girða af stórt svæði við Krýsuvík til að fá vinnufrið til að hreinsa burt eldflaugabrak og geislavirkan úrgang.
Þá er og eigi um að kenna skemmdarverki hve erfitt hefur verið að heimsækja falsmiðlana síðustu mínútur.
Urrrr... ég þoli ekki hvað ég er ónæm fyrir jarðskjálftum, annað hvort finn ég bara örlítinn kipp eða ég sef í gegnum allt saman...
Eigi erum vjer vissir um að auðvelt hafi verið að finna fyrir þessu á jörðu niðri eða á jarðhæð, þetta stóð yfir í einungis sekúndubrot, a.m.k. eins og vjer fundum þetta.
♪This is Major Tom to ground control...♪
Ég hélt jafnvel að þetta hefði bara verið vindurinn að kippa í húsið.
Fílar ekki náttúruhamfarir af neinni stærðargráðu
Sprengingin fannst hér á annarri hæð í því húsnæði er ég stunda mína vinnu í.
Þó svo að forsetaembættinu sé ókunnugt um að sprengingin hafi orðið af völdum geimskipstilrauna sinna, er ekki engu að síður hugsanlegt að hér hafi verið á ferðinni geimskip frá annarri lífstjörnu er hrapaði til jarðar?
Hjúkk..!
Mér fannst þetta líka full dramatísk áhrif af einu rauðvínsglasi....
Var þetta kannski bara hvæsi eftir heimsókn í rúgbrauðsgerð?
Eða Leibbi Djass að þenja nikkuna!
Var þetta um allt höfuðborgarsvæðið? Þetta kom allavega ekki hingað í dalinn, enda svo vel einangraður ig víggirtur...
Eigi fáum vjer sjeð að það falsmiðlafrjettamál komi sprengingunum í Krýsuvík neitt við.
Sá eða sú er stal tveimur langdrægum flugskeytum frá oss fyrr í dag í ringulreiðinni er fylgdi sprengingunum er hins vegar beðin(n) um að gefa sig fram strax.
Hvæsi rakst á þett fyrir algera "tilviljun" áðan og rödd í hausnum á honum sagði að sýna forzeta þetta.
http://www.blog.central.is/603moonlight?page=comments&id=1495294
Tímavjel....
Ég sakna þess að finna fyrir jarðskjálfta svona öðru hverju. Leiðinda pirr að eiga heima í svíaríki stundum. Er ekki hægt að bíða með næsta "jarðskjálfta" þangað til að ég er næst í heimsókn heim á klakanum?
Var ekki einhver sem náði að tappa þessu á brúsa?
Mig minni það endilega, athugaðu á e-bay. Einhver tyrki sem var með bás þar.
Það er meira að segja hægt að prútta hjá honum.
Ég sakna þess að finna fyrir jarðskjálfta svona öðru hverju. Leiðinda pirr að eiga heima í svíaríki stundum. Er ekki hægt að bíða með næsta "jarðskjálfta" þangað til að ég er næst í heimsókn heim á klakanum?
Vjer getum auðvitað (gegn hæfilegum mútugreiðslum til forsetaembættis Baggalútíu) framkallað 'jarðskjálfta' (með aðstoð eliptons og viðeigandi flugskeyta) í Svíaríki berist þaðan óskir um slíkt.