Damar mínir og herrur,
Föstudaginn 10. mars mun Þarfaþing koma saman að nýju. Þeir sem tóku sæti á fyrsta þingi geta vottað fyrir það að þing þessi eru hin mestu þarfaþing í skammdeginu, sem reyndar fer nú sem betur fer síminnkandi.
Fyrir þá sem ekki voru þar gef ég eftirfarandi upplýsingar:
- Þingið verður sett klukkan 20:00
- Það verður haldið að Hringbraut 101, 107 Reykjavík
- Á bjöllunni eru þrjú nöfn, skrifuð með penna. Hún sker sig því algjörlega út frá hinum bjöllunum.
Ég mæti.
Dæsir
Athugar hvað til standi að gera eftir 5 ár. Áttar sig svo á að líklega er önnur skýring á þessu og gerir tímavjelina klára
Hvort verður þetta árið 2005 eða 2011 ?
Dæsir
Þýðir þetta dæs að þú sjáir þér ekki fært um að mæta?
Þetta er hið mesta þarfaþing.
Þetta verður núna í ár. Ég leiðrétti villuna sem olli misskilningi. Þú getur því slökkt á tímavélinni, Vlad. Nema auðvitað ég ákveði hér og nú að hafa annað þing 11. mars 2011.
Hvað í tímabundnum tímaferðalöngum á það að þýða að breyta allt í einu dagsetningunni er gefin er í upphafsinnlegginu úr föstudeginum 11. mars í föstudaginn 10. mars ? Nú þurfa allir þeir er farnir voru að skipuleggja árið 2011 (eða huga að breytingum á árinu 2005 með ferðalögum aftur í tímann) að skipuleggja allt upp á nýtt algjörlega frá grunni Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér.
Mega allir koma?
Já. Nema Hrafn Gunnlaugsson. Hann er perri.
En ef Hrafn Gunnlaugsson er Glúmur ?
Gott. Ég er nefnilega perra.
Perrur eru nefnilega velkomnar. Og perrar sem eru ekki Hrafn Gunnlaugsson.
En ef Hrafn Gunnlaugsson er Glúmur ?
Þá fellur heimurinn saman í einpunkt.
Vorum við ekki búnir að semja um að Þarfaþingið verði haldið 11 júní?
Eru einhverjar reglur um klæðaburð? Mér finnst voðalega gott að vera frjálslega klædd.
Dæsir
Þýðir þetta dæs að þú sjáir þér ekki fært um að mæta?
Sem fyrr...
Haldið daginn áður en ég kem heim? Hrökklast aftur á bak og hrasar við Hverenig á ég að geta séð mér fært að koma þegar skipulagið er sett svona öfugt? Heimkomupartý --> eftir heimkomu