Úpps, á greinilega mikið eftir ólært.
Sko, komma! Dugleg. Gefur frúnni Egils malt
Virðir frú72 fyrir sér úr hæfilegri fjarlægð og fitjar eilítið upp á nefið
Reyndu bara að haga þér almennilega, rita rétt og vandað mál og koma af tilhlýðilegri virðingu fram við þér eldri gestapóa. Þá er aldrei að vita nema þér muni vel farnast.
Ætlir þú þér hins vegar ekki að ílengjast hér hafðu þig þá sem skjótast á brott. Ég er orðinn hundleiður á að kynna mig fyrir og kynnast ístöðulausum nýliðum sem engin ending er í.
Annars heiti ég Sundlaugur Vatne, sundkennari. Viltu koma í sund? Veltir því fyrir sér hvort hann hafi kannske verið full fljótur á sér að bjóða þessu eintaki í sund. Hann er ekki alveg viss hvernig sér líkar hún.
tekur sér stöðu við hliðina á Sundlaugi
Já, velkomin frú72...
Velkomin á meðan þú endist og láttu hin ekki fara of mikið í taugarnar á þér. Setur sig í stellingar. Hnykklar vöðvana. Finnur að vöðvarnir eru ennþá bara 100% svampar. Fer.
Sammála síðasta ræðumanni!
Kíkir aðeins á Frúna og reynir að kíkja undir pilsið hennar
Er þetta heillegur kvenmaður ?
Hún er nú hálfföl eitthvað, og líka með þetta stóra, skrítna, svarta tattú á andlitinu. Ég veit ekki...
Kíkir aðeins á Frúna og reynir að kíkja undir pilsið hennar
Er þetta heillegur kvenmaður ?
Hvæsi?! Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Jájá, Æji, hitt var bara of langt. Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Þetta venst.
Afþví að það mætti halda að þú hafir verið að skrá þig á "Match making" vef.
Bíddu hæg ... er þetta ekki "Match making" vefur?
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Veltir fyrir sér hvort hún sé á röngum vef....
Mér líst ekkert á þetta...
Grípur þéttingsfast um atgeirinn og horfir grunsemdaraugum í kringum sig
Lagar geislabauginn
Ég er að segja ykkur það, þessi pía er ekki svöl.
Fer að lítast enn verr á hlutina
Bakkar rólega af þræðinum
Hleypur í burtu