þAð er nú aldeilis skemmtilegt að lesa þetta Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Verið velkomin bæði tvö. Vonandi verður dvöl ykkar hér ánægjuleg.
Horfir á nýliðana eins og pempíur horfa á myglaðan hrossaskít Nennir ekki að eyða orðum á þetta pakk
Velkomin frú 72. Vonandi verður dvöl þín ánægjuleg.
Ég hef spurningu fyrir fróða menn og svona hljóðar hún:
hvernig Næli ég mér í einkennismynd?
Fyrst þarftu að sleikja þig upp við Enter í svona viku, sent honum síðan mynd í einkapósti og vonast til þess að þú hafir sleikt hann nógu vel upp. Nú já, eða bara valið úr myndasafninu.
Leitið og þér munuð finna. Neitar að gefa upp frekari upplýsingar að svo stöddu
Pottormur minn, þegar þú ert búinn að senda inn 10 innlegg, smellir þú á Niðurskipan fyrir neðan nafnið þitt ofarlega til hægri á síðunni og þá birtast leiðbeiningar um hvernig hægt er að velja mynd úr myndasafni.
Láttu ekki Don hræða þig.
Kastar eggi í Herbjörn Ahhh, sorry! Ég hélt í alvöru að það væri ekki harðsoðið... Flautar sakleysislega og labbar í burtu með hendur í vösum
Allir bestu nýbúa-morðingjarnir, Hver fann upp hrygðarómyndina ,,Nýbúi"? hafa verið óvirkir að mestu um all langt skeið.
Það er því ánægulegt að reyndur ,,Sikileyingur" vilji taka það að sér að temja trippin.
Sjálfur nenni ég ekki lengur að merja lýs, en stekk frekar á bak þeim síðar þegar þær telja sig orðnar öruggar.
Velkomin Ormur og frú. Nú er bara mánuður þar til silungsveiði árnar opna Ljómar upp
Hegðið ykkur bara skikkanlega. Annars vek ég Frelsishetjuna eða Hóras og læt þá éta ykkur. Bú!!
og takk fyrir það don de vito
Stóran staf í upphafi setningar og svo punkt í lok setningar takk fyrir!
Urrar
og takk fyrir það don de vito
Stóran staf í upphafi setningar og svo punkt í lok setningar takk fyrir!
Já, og svo er Don, De og Vito allt saman skrifað með stórum staf! Veltir því fyrir sér hvað hún sé að þakka fyrir
Ég var einmitt að spá í því... og svo hvað er málið með þetta nafn? fru72?