Þetta orti snillingurinn hún Furðuvera. Fyrirmynd ungra Gestapóa.
Furðuvera var það... ástæðan fyrir því að þetta þótti ekki óeðlilegt níð, var að þetta var á Rífist á þræði, en þar níðir fólk hikstarlaust og mjög skemmtilegt að lesa oft á tíðum...
blóðugt var á undan en Grýta var meira afdráttarlaus í sínu svari... þið ráðið stelpur hvor fær réttinn...
Roðnar
Það tilkynnist hjer með opinberlega að sem stofnandi þráðarins lítum vjer svo á að blóðugt eigi spurnarrjettinn (þó mælum vjer eigi með að giskað sje á mörg nöfn í einu).
Ég giskaði en Grýta var viss, hún má því eiga spurnarréttinn.
Ég þigg þá spurnarréttinn.
Hér er brot úr sálmi;
Sættu þig við súld og rok
þó sárt í vanga rífi,
því óveður og fjaðrafok
fylgir þessu lífi.
Hver orti?
Þetta er mjög flott, ég ætla að byrja á að giska á að Barbapabbi hafi átt þetta.
Z. Natan held ég að hljóti að hafa ort þetta.
Ég tel þetta hljóti að koma úr smiðju Bölverks.
Skabbi skrumari ?
Nei, ekkert þessara stórskálda.
Bíð aðeins eftir, fleiri ágiskunum áður en ég kem með vísbendingu.
..... og þó. Sálmaskáldið hefur skipt einu sinni um mynd.
hlewagastiR gæti auðveldlega hafa samið þessa snilld, stenst það?
Zorglúbb?
Löffi? (Lærði-Geöff)
Lærði Geöff er rétt svar hef það frá fyrstu hendi..Ljómar upp
Hárrétt blóðugt!
Lærði-Geöff er skáldið.
Hér er allur sálmurinn;
Lífsins gátur.
Að lífsins gæðum legg ég drög
leikur hulinn móðu,
þú forða skalt í lengstu lög
að lofa öllu góðu.
Skuldbindingum skaltu þá
skila þér til sóma,
og litrík muntu launin fá
lífsins þeytta rjóma.
Vinum öllum gefðu gjöf
gerðu daga betri
þá sólin skín um heimsins höf,
hallar köldum vetri.
Sættu þig við súld og rok
þó sárt í vanga rífi,
því óveður og fjaðrafok
fylgir þessu lífi.
Bera skaltu bros á vör
þó brekkur reynist hálar
þá glaðleg munu gefast svör,
gull í anda sálar.