Hvorugur. Eigi er sjerlega langt síðan gesturinn átti rafmæli.
[Kristallur] von Strandir?
Loksins kom þetta, það var Fíflagangur (hjet áður Fíbblagangur) er þetta orti í eftirfarandi þræði:
http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=2730
Umræðuefnið er kunnuglegt, klámfenginn kveðskapur eða að yrkja frekar undir rós.
En Skabbi á spurnarrjettinn.
hlewagastiR: gamall, þrár,
grámyglaður, lúinn,
asni, bjáni, agnarsmár,
illa vaxinn, fúinn,
fáráðlingur, fjólublár,
frosin heilabúin,
brátt hann verður barinn nár,
beint í jörðu knúinn.
Þetta gæti svosem hafa verið gert af Enter á léttri flippstundu.
Varla þó - eða hvað . . .
Á köflum minnir kveðskapur þessi oss á hlewagastiR sjálfan en oss finnst þó afar ólíklegt að hann færi að yrkja svona um sjálfan sig auk þess sem líklega mundi hann gera það (enn) betur...
Er þetta kannski bara Heiðglyrnir? [Rámar í eitthvað svona frá honum í Rifist á.]
Mig grunar sem Vladimir að þetta sé Hlebbi sjálfur.
hlewagastiR: gamall, þrár,
grámyglaður, lúinn,
asni, bjáni, agnarsmár,
illa vaxinn, fúinn,
fáráðlingur, fjólublár,
frosin heilabúin,
brátt hann verður barinn nár,
beint í jörðu knúinn.
Ekki hlewagastiR sjálfur né Heiðglyrnir...
Ég giska hér á Harald Austmann.
Ekki var það Halli... bíð aðeins með vísbendingar...
Ein vísbending: Þessi manneskja er mjög fær í bragfræði en fer mjög sjaldan á Kveðist á, þó hann/hún sé yfirleitt mjög dugleg(ur) við að mæta á Gestapó...
Giska á Limbra bara.. Klórar sér í höfðinu
Nei ekki er það blessaður Limbri... enda er hann vonlaus í kveðskap (komdu hingað Limbri og viðurkenndu það)... Þess ber að geta að engum þótti óeðlilegt við að níð um hlewagastiR skildi vera samið á þessum tíma á þessum stað... (hér gæti ég verið að koma með vísbendingu eða leiða fólk út af rétta sporinu)...
Grunar að þetta sé kona...
Stelpið eða Furðuvera?