Varst það þá þú sem ég ældi yfir á leiðinni úr bænum í morgunsárið? Ég skal borga hreinsun fyrir þig kallinn.
Eftirtaldir mættu
albin
Anna Panna
Nermal
Nornin
Offari
Prins Arutha
Skabbi skrumari
Skúnkur Skíthaus
Þarfagreinir
Biðst forláts ef ég gleymi einhverjum, en ég hlóð full mörgum köldum í mig
Tuðran lét líka svo lítið að sjá sig... Þekkti ekki fleiri en það þó.
Það var frábærlega gaman og Enter, Númi og Spesi kynþokkafullir sem endranær.
Við Anna reyndum að stíga línudans en þar sem sætin okkar voru næstum því 'baksviðs' þá var það ekki auðvelt (með baksviðs á ég við á bak við sviðið inn í salnum, ég dáðist því aðallega að baksvip Núma á tónleikunum).
Það var líkt þessum púnteruðu akurhænsnum að láta hljómsveitina snúa rassi í heiðursgestina.
Takk fyrir okkur - þetta var ljómandi skemmtilegt. Húrra fyrir Akureyri!
Hvar er það?
Þar sem hreindýrin og framsóknarmennirnir búa.
hryllir sig
Það á nú við um alla sveitabæi á Íslandi.
Jæja þar sem göturnar heita Frönskum nöfnum.
Nei, Offari þó!
Það er Frakkland.
Jæja þar sem göturnar heita Frönskum nöfnum.
Rue la Albert de Kemp.
I'm not worthy!!! Hneigir sig niður í gólf fyrir hæstvirtri Köntrísveit Baggalúts
Ég þakka kærlega fyrir frábæra skemmtun og ég verð bara að segja að mér leiddist ekki útsýnið yfir bakhluta framlínunnar glottir eins og fífl Vona samt að ég fái betri sæti á næstu tónleikum!