Ég vildi bara nefna það að það var stórkostlegur þáttur á NFS / Stöð 2 í gærkveldi. Það sem þar var tekið fyrir hefur verið skiljanlega mikið feimnismál og felumál fyrir fjölskyldur en loksins þorir einhver að taka á þessu máli! Lifi Kompássmenn!
Var að vinna og missti af þættinum. Hef heldur ekki afl til að sjá hann á netinu. Blótar herfilega og rífur hár sitt
Þetta er greinilega enn feimnismál, fyrst þú ert of feiminn til að segja okkur um hvað þeir voru að fjalla...
Þetta var svakalegur þáttur ég gat ekki hætt að horfa fyrr en þetta var búið.
Já, þetta var rosalegur þáttur. Þikist vita um hvað er verið að tala En ekki þori ég að ræða þetta.
Var í raun verið að ræða aðgengi barnaperra og níðinga að börnum í gegnum netið hvernig þeir tæla þau í gegnum msn og einkamál. sumir voru til í að borga og allt þar fram eftir götunum. Stelpan sem var tálbeita fyrir kompás spurði þá hvort þeim fyndist það í lagi að hún væri bara 13 ára þá sagði eitt karl helvítið ha 13 ég hélt þú værir 14!!
Af þessum tugum sem svöruðu þá voru þeir á aldrinum 16 uppí sjötugt
Þetta er viðbjóður... svona helvíti eiga allt ömurlegt skilið.
En til að fyrirbyggja allan misskilning þá hélt ég að allir vissu um hvað þátturinn væri svo það væri óþarfi að nefna það hér. En Kompásliðar hafa hreyft við þjóðinni og eiga skilið að fá fálkaorðuna bara fyrir þennan þátt!
"Ég er að gera könnun". Hversu heimskur getur maður verið?
"Ég er að gera könnun". Hversu heimskur getur maður verið?
Afskaplega heimskur getur maður verið. Það er ekki þarmeð sagt að maður eigi neitt illt skilið.
Þetta var svakalegur þáttur. Þessi níðingsógeð eiga kannski eftir að hugsa sig tvisvar um næst, vitandi að þeir gætu lent á tálbeitu fréttamanna. Gott á þá. Þetta er fréttamennska sem hefur áhrif.
Mér heyrðist einhver segja að einn mannanna hefði þekkst þrátt fyrir afmyndun og raddarugl....
Hef nú fræðst um málið eftir að hafa hlítt á fréttir á RÚV. Þetta NFS ætlar sumé ekki að láta sitt eftir liggja í opinberum mannorðsmorðum, frekar en hinn armur fjölmiðlasamsteipunnar.
Hvað er að svona pervertum? 64 ára gamall kallskratti að leita til 13 ára smástelpu!! Mér er slétt sama hvort þeir hafa þekkst eða ekki. Þeir komu þarna í leit að barni til að nota til að svala sínum brengluðu físnum. Hafa vonandi drullað í brækurnar þegar fréttamaðurinn birtist. Kompás fær fimm stjörnur fyrir þáttinn!!!
Vonandi að þessir perrar hugsi sig tvisvar um áður en þeir þora að hafa samband aftur.Nú er hættan sú að það sé verið að leggja gildrur fyrir þá og þá verða þeir vonandi hræddir.Ég mun allavega fylgjast með því sem dóttir mín er að gera á Msn og mun skoða það reglulega.
Skál fyrir Kompás. xT Ljómar upp