Ég þakka öllum fyrir prýðilegt kvöld. Ég vil líka þakka Heiðglyrni fyrir að hafa boðið okkur á knæpu síðar um kvöldið og keypt undir okkur áfengi - það gerði skemmtunina enn meiri.
Þetta var gríðarlega fínt kvöld. Heiðglyrnir var hinn mesti höfðingi í gærkvöldi og Þarfagreinir frábær gestgjafi. Það er alltaf gaman að hitta og kynnast góðu fólki. Ég þakka fyrir hunangið og mig. Gefur frá sér vellíðunarstunu
Ég vil líka þakka Þarfagreini fyrir þá afbragðssýningu þegar hann breytti bjór í vín..
Þessi trefill á höfði hans fór honum afskaplega vel.
Allir á listanum, nema Ívar og Hexia.. svo var Isis, Skoffín og Litla rassgat þarna líka.
He-hemm...!
Takk annars bara fyrir kvöldið!
Ég gleymdi þér ekki neitt!
Roðnar niður í tær
Sko ANNA PANNA var þarna líka!
Þú áttir sko að vera með svona sér kynningu.
Gengur inn á þráðinn í slopp
Takk fyrir kvöldið! Og skál!
xT
Hrekkur upp frá að sleikja sár sín yfir að missa af hittingnum
Haa? Var einhver að kalla?
Já Sloppur, ég er alltaf í bleikum slopp á morgnanna. Eins og núna t.d.