Enda gaf Þarfi upp heimilisfangið hjá Glúmi. Hinum sem í alvöru er boðið sendi hann einkaboð. Glottir svínslega
Geyspar
Hefur fjölgað á þátttökulistanum síðan ég sá þetta síðast?
Er ekki ráð að allir kynni sig sem Glúmur og þá veit enginn hvort jarmi mætti eða ekki...
Þeir sem ætla að mæta eru:
Furða
Aulinn
Hexia og Ívar (held ég)
Gunnar H. (hann ræður engu um það, ég dreg hann)
Þarfagreinir (vona ég þar sem þetta er hjá honum)
sphinxx
Tumi Tígur
Bangsimon
B. Ewing (Kemur bara á ágætum tíma)
Ferrari (Var hann annars ekki að tala um það?)
ENGIR FLEIRI?! ERU ÞIÐ AUMINGJAR?!
Ég verð að valda ykkur vonbrigðum, þar eð ég kemst ekki sökum anna í ráðuneytunum mínum tveimur. Þar að auki er ég boðaður í annað boð á nákvæmlega sama tíma (8 á föstudagskvöldi). Ef þið höfðuð hugsað ykkur að fara niður í bæ á eftir, hafið bara samband í gegnum póstinn.
Annars mæti ég bara næst.
Sýpur ákavítishveljur
Skemtið ykkur konunglega án mín ég skyldi bara vera fyrir hvort sem er og alt vínið og góða skapið í ykkur skyldi kanski fá mig að brosa og það hef ég ekki gert síðan
gamla kenslukonan mín úr fyrsta bekk sagði okkur brandara um rakara úr Hafnafyrði. það er eini brandarin sem ég kann. Það gerir ekkert til því þið skilduð hvort sem er ekkert hlæja að honum og ég skildi fara feimin út í horn
það gerir ekkert til ég skyldi bara vera fyrir og þegar þið væruð farinn að dansa skyldi mér vera boðið upp síðast af öllum það gerir heldur ekkert til því engin hefur nokkrusinni boðið mér upp. og ef einhver vorkendi mér svo að húka þarna einum í horninu og reindi að tala við mig skildi hann eki skilja mig. það gerir ekkert til því einginn skilur mig. það gerir ekkert til því ef einhver nálgaðist mig þá skildi ég transpirera svo mikið sökum feimni að viðkomandi skildi flíta sér þaðan og þá skildi ég verða leiður og einmanna . það gerir svolítið til . þessvegna sit ég heldur hérna einsamall út í mínu horni. Enn skemtið ykkur vel xT
Gengur inn á þráðinn í slopp
Takk fyrir kvöldið! Og skál!
xT
Allir á listanum, nema Ívar og Hexia.. svo var Isis, Skoffín og Litla rassgat þarna líka.
Þetta var magnað, alveg yndislegt. Takk fyrir æðislegt kvöld! xT
Já Furða mín, yndislegt kvöld.
Grætur sáran
Helvítis djöfulsins andskotans ekkisens vesen að börnin skyldu veikjast akkúrat þegar maður ætlar að gera sér dagamun. Heldur áfram að gráta
Þið verðið bara að eiga kakóið inni....
Svona, svona... verður bara að vera hittingur aftur í bráð.
Þú verður að koma með lögilt vottorð. Þarf að sótthreinsa aftur?
Æjá, það þarf alltaf að sótthreinsa þegar börnin leika lausum hala innanhúss og mega ekki fara út að leika.
Pakkar niður Sótthreinsivélinni og gerir sig ferðbúinn. Ég kem um leið og ég fæ kallið!
Þetta var svo gaman.
Ég sendi Þarfa SMS með eftirfarandi tilkynningu í gær:
Vegna heilsufarslegra mótmæla barna og skorts á samstarfsvilja tímabundinna barnaeftirlitsaðila hefur hittingaúthlutunanefnd Sívertsen-De Trix fjölskyldunnar skilað þeirri tilskipun að Ívar og Hexia skuli vera heima í kvöld.
Barst þetta réttum aðilum?
Þarfi fékk þessi textaskilboð jú.