Ég hef verið að stunda það undanfarið að græða þriðja heilahvolfið í fólk og nota það síðan sem örgjörva (e. human processing). Ég hef jafnvel notað nokkur manns í einu, raðtengt heila þeirra og gefið þeim últra-kóbalt í æð. Tilraunir mínar gefa vísbendingu um að "manngjörvar" geti verið hentugir í verkefni þar sem reikna þarf gífurlegan fjölda reikniaðgerða t.d. við þróun á kjarnavopnum eða við smíði geimfara.
Þó hafa vaknað spurningar um siðferðislegt réttmæti tilrauna minna.
Ég lýsi yfir stuðningi mínum við tilraunir þessar.
Gefur frá sér vellíðunarstunu
Hvað er að sjá. Heilbrigðiskerfið í hnotskurn?-Geðpatinn hlýtur að hafa útskrifað þig vegna fjárskorts.
Heilbrigðiskerfi = heilt kerfi sem er alltaf að bregðast?
Ég myndi telja að þessar tilraunir þínar siðferðislega réttar, að því gefnu að þetta fólk sé þín eign.
Vjer teljum engan vafa á að tilraunir yðar eru siðferðilega rjettar og raunar er siðferðileg skylda að gera þær ef það er mögulegt. Þetta allt er þó að því tilskildu að umræddar tilraunir sjeu gerðar í þeim göfuga tilgangi er þjer lýsið í skeyti yðar.
Það var og,leyniþjónustan komin í málið.Þar með má snaróður vísindamaður
gera hvað sem er bara það þjóni ykkar mannfjandsamlegu tilveru.
Hátæknivæddur Frankenstein er mér ekki að skapi.
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Kvurnin kemst maður í tæri við þátttakendur í slíkar tilraunir? Takiði bæði heilahvelin eða bara annað úr heilagjöfum?
Við hér í frumkvöðlasetrinu á Höfn erum með ýmislegt á prjónunum og viljum gjarnan koma á samstarfi.
Hvað varðar siðferðisspurninguna þá spurið þið bara Jón Steinar.....
Starir þegjandi út í loftið
Nánar um verklag tilrauna.
Þriðju heilahvolfin eru flest leigð í gegnum Úkraínskar líffæraleigur hin eru í einkaeigu.
Gat er gert á höfuðkúpu þátttakenda, heilahvolfið grætt með lóðbolta við hin tvö. Hæfilega stór bútur af smjörpappír lagður yfir gatið og honum haldið föstum með teygjum sem spenntar eru undir kjálka. Loks er últra-kóbalt gefið í æð til að örva heilastarfsemina og heilar þáttakenda tengdir móðurtölvunni þar sem hin eiginlega vinnsla fer fram.
Helstu verkefni sem ég hef unnið að með notkun "manngjörva":
-Náði að ráða dulmál alþjóðlegra kóbaltandstæðinga
-Þróun kóbaltsdrifs fyrir Geimbraskstofnunina
-Fjöldi leynilegra verkefna fyrir Baggalút
Ég legg til að hálsgjörð, 15cm á hæð og minst 2cm að þykkt úr krómuðu stáli
verði sett um háls yðar.Fjórum vönduðum teygjum smeygt undir og þær
strengdar í fjögur horn gúmíklefans.
Helstu verkefni sem ég hef unnið að með notkun "manngjörva":
-Náði að ráða dulmál alþjóðlegra kóbaltandstæðinga
-Þróun kóbaltsdrifs fyrir Geimbraskstofnunina
-Fjöldi leynilegra verkefna fyrir Baggalút
Þetta er stórkostlegur árangur og verðugri og mikilvægari verkefni er erfitt að ímynda sjer. Vjer hvetjum yður því til dáða og jafnframt eindregið til að halda þessum stórmerkilegu og siðferðilega nauðsynlegu tilraunum áfram af fullum krafti.
Hvað eruð þið flúnir? Ég ræddi nú við yfirlækninn og hann fullvissaði mig um það að í raun væruð þið hættulausir. Og þá, ég kem mér valla að því að spyrja,datt mér í hug hvort hægt væri að senda þrjá svona samtengda heila til stjörnuþokunnar Ultramedíu á innan við viku að sækja hágæða
Ultra- Kóbalt.
Þegar býsnesmaðurinn kemur upp í honum halda honum engin bönd
Hér vil ég benda á lausn á þessu vandamáli sem hefur hrjáð menn og málleysingja undanfarið. Lausnin er pækilsaltað kúbein. Það er sorfið í hentugar lengjur og síðan er því stungið inn á milli heilablaðanna. Framkallast þvílík ofurnautn að mannlífið á þessum hnetti umbreytist umsvifalaust úr táradal mannhaturs og fáfræði í gleðilendur og lífs án teljandi þvagfærasýkinga. Kóbaltvír er óþarfur héðan í frá! Stekkur hæð sína
Brestur í óstöðvandi grát Hvernig má anað vera en maður verði raunamæddur að sjá viðleitni til aukins þroska og þekkingar verða að háði og spotti einmitt hjá þeim einstaklingum sem helst vegna greindar og þroska ættu að fylgja slíkum málum úr hlaði og vera vel vakandi fyrir þekkingarauka. Já það er sorglegt að sjá hvernig skynsemi er kastað á glæ. Kenningar Dr. Helga eru vandlega unnar og mikið framfaraspor ekki aðeins á hans tíma heldur einnig á okkar þar sem fjölmargt er að koma í leitirnar hjá vísindamönnum, atriði er Dr.Helgi hafði sagt fyrir. Má þar nefna yfirborð reikistjörnunar Mars. Fullyrðingar fjölmargra vísindamanna að veröldin hljóti að stjórnast af æðri viti. Kenningar Dr.Helga eru ekki skoðanir heldur heilsteypt heimskerfi og byggir á náttúrulegum forsendum. Það er að segja Efni er óaðskiljanlegur þáttur orkunnar, eða orka og efni eru óaðskiljanleg fyrirbæri. Þar sem orka er, þar er efni.
Hvernig er það haldið þið nokkuð að Dr.Helgi hafi haft niðurskorið saltað kúbein í heilanum þegar hann týndi blýantinum sem skaust yfir í annað sólkerfi þar sem einhver þekkti að þetta var blýanturinn hans Helga og sendi hann strax með næstu ferð til baka þar sem Dr.Helgi fann hann þar sem hann hafði týnt honum.,,,.
Þegar ég rak augun í fyrirsögnina yfir pistli yðar þá hvarflaði að mér að hér væri loksins kominn annar talsmaður fyrir mannáti en svo var ekki. Ég styð þó tilraunir yðar að öllu leiti enda er ég eindreginn fylgismaður þess að hugað verði betur að nýtingu "mannauðs" svokallaðs, hvort sem það liggur á sviði matvælaframleiðslu, tölvuvinnslu eða sútunar.
Þetta er reyndar kjörið tækifæri til að koma á framfæri hugmyndum mínum um stofnun hlutafélags um nýtingu mannauðs á Íslandi sem og annars staðar, auglýsi ég því eftir heppilegu nafni á félagið og hlutafé.
Ég verð að segja að manneldisráð hefur ekki verið að standa sig í hlutverki sínu enda hefur stefna núverandi stjórnarflokka varðandi nýtingu mannauðs verið þokukennd svo ekki sé meira sagt. Brestur í óstöðvandi grát
Nánar um verklag tilrauna.
Þriðju heilahvolfin eru flest leigð í gegnum Úkraínskar líffæraleigur hin eru í einkaeigu.
Ég var að spá í að leigja annað heilahvel mitt, hvað á ég að láta það fara á ?