Já, núna ætla ég að fara að taka þátt í samræðum hér á Baggalúti. Ég hef ekki skrifað neitt hérna í svona mánuð eða meira. Ég efa það ekki að það séu nokkrir sem hafa eingann áhuga að ég komi aftur en þeira meiga bara eiga sig.xT
Við byrjum á því að skoða hvar veikleikarnir eru. Svo virðist sem þú hafir eigi náð tökum á því þegar ritun stangast á við hljóðmynd, eins og sjá má. Reglan er eins og svo oft áður tengd stofni orða.
Orð eins og segja og mega eru ekki rituð með i þó hljóðmynd bendi til þess. Það er vegna þess að orðin er að stofni til úr orðunum saga og má
vonandi er ég ekki orðinn ryðgaður í þessum fræðum. Lítur flóttalega í kringum sig
Ég pældi einmitt í þessum orðum. Ég er ekki að afsaka mig en þetta var í morgun
eftir að ég var búin að bera út Morgunblaðið. Meðaleinkun mín í stafsetningu er 9. Ef ég geri einhverjar villur þá eru það oftast innsláttarvillur. En annars takk fyrir ábendinguna...Glottir eins og fífl
Einkunnir á prófum segja ekkert um getu fólks, yfirleitt ekki... og innstáttarvillur? Hentust fingurnir þínir óvart á i-ið?
Hún er ruglaður Nörd. Ekki getur það verið svo flókið.
Til að koma í veg fyrir allan misskilning þá er ég kvennkyns
Nörd getur alveg verið kvennkyns!
Nei sko! Það er annar njörður búinn að bætast í hópinn.
Betur að þú hefðir haldið þig heima hjá þér, ómyndin þín, okkur öllum til óblandinnar ánægju.
Svo er kvenkyns ritað með einu n-i, gerpið þitt. Einkunn þín í stafsetningu samanborið við getu þína til að rita rétt segir mér að kennarinn þinn er gersamlega óhæfur í starfi.
Nördin ég haf ekki heyrt um það þú þarna litli eða stóri, mér er sama. Allavegana omgstfunoob...Blótar herfilega og rífur hár sitt
Hristir höfuðið og veltir því fyrir sér hvort ekki sé rétt að setja kvóta á svona fyrirbrigði.
Tekur vatnið úr Sundlauginni