Já, núna ætla ég að fara að taka þátt í samræðum hér á Baggalúti. Ég hef ekki skrifað neitt hérna í svona mánuð eða meira. Ég efa það ekki að það séu nokkrir sem hafa eingann áhuga að ég komi aftur en þeira meiga bara eiga sig.xT
Ég hef nú aðallega áhuga á að þú lagir stafsetningarvillurnar þínar.
Ég hef mestan áhuga á að vita hvernig þér gengur að temja Bauvið.
Núna hef ég mestan áhuga á að vita hvar bauvið er niðurkomið.
Spennandi að sjá hvort það ræðst á beituna.
Já, núna ætla ég að fara að taka þátt í samræðum hér á Baggalúti. Ég hef ekki skrifað neitt hérna í svona mánuð eða meira. Ég efa það ekki að það séu nokkrir sem hafa eingann áhuga að ég komi aftur en þeira meiga bara eiga sig.xT
Við byrjum á því að skoða hvar veikleikarnir eru. Svo virðist sem þú hafir eigi náð tökum á því þegar ritun stangast á við hljóðmynd, eins og sjá má. Reglan er eins og svo oft áður tengd stofni orða.
Orð eins og segja og mega eru ekki rituð með i þó hljóðmynd bendi til þess. Það er vegna þess að orðin er að stofni til úr orðunum saga og má
vonandi er ég ekki orðinn ryðgaður í þessum fræðum. Lítur flóttalega í kringum sig
Ég hef hvorki áhuga á að þú né nokkur annar snúi aftur á þennan vitlausraspítala!
Allrasíst ég.
VOOOOOOLAAAAAAAAAREEEEEEEEEEEEE!
Noh - mikilmennin snúa aftur í hrönnum hérna. Hvar ert þú búinn að halda þig, Tony? Á einhverri skítugri Las Vegas búllu kannski? Vonandi gáfu þeir þér eitthvað að súpa á í skiptum fyrir þjónustu þína sem rottufæla.
Já, núna ætla ég að fara að taka þátt í samræðum hér á Baggalúti. Ég hef ekki skrifað neitt hérna í svona mánuð eða meira. Ég efa það ekki að það séu nokkrir sem hafa eingann áhuga að ég komi aftur en þeira meiga bara eiga sig.xT
Við byrjum á því að skoða hvar veikleikarnir eru. Svo virðist sem þú hafir eigi náð tökum á því þegar ritun stangast á við hljóðmynd, eins og sjá má. Reglan er eins og svo oft áður tengd stofni orða.
Orð eins og segja og mega eru ekki rituð með i þó hljóðmynd bendi til þess. Það er vegna þess að orðin er að stofni til úr orðunum saga og má
vonandi er ég ekki orðinn ryðgaður í þessum fræðum. Lítur flóttalega í kringum sig
Ég pældi einmitt í þessum orðum. Ég er ekki að afsaka mig en þetta var í morgun eftir að ég var búin að bera út Morgunblaðið. Meðaleinkun mín í stafsetningu er 9. Ef ég geri einhverjar villur þá eru það oftast innsláttarvillur. En annars takk fyrir ábendinguna...Glottir eins og fífl
Ég hélt að nörd væri nær öldungis ruglaður drengur? Alltaf lærir maður eitthvað nýtt, og svosem ekkert slæmt að stúlkur taki þátt líka...
fer að velta fyrir sér kyni nördsins og dettur í hug að hugsanlega hafi hann mælt of snemma
verður vandræðalegur
Ég meinti...ég er ekki viss um hvort að þú sért ruglaður..
flýr af vettvangi
Hún er ruglaður Nörd. Ekki getur það verið svo flókið.
Vertu hjartanlega velkomin til baka Nú erum við allavega tveir nörðarnir á lútnum.
Það verður ekki aftur snúið hér eftir.
Það er þó framför.
velkomin bíður uppá vindil til að fagna heimkomunni