Ígor fór og í sér náði inn úr kúpu
heila tvo úr heilli rjúpu.
Rjúpan mín hún Ragnheiður er rosa pía.
Frá Stokkseyri, en styður ÍA.
ÍA sagði asninn þegar í hann tóku
heljarmenni, og hann svo skóku.
Skeknar krúsir skulu blúts og skellt í tána,
hjartað styrki' og hýrga brána.
Brána skal ég brúna áðr'en bregð ég fæti
út á líf, og er með læti.
Læti eru í þér góði, öllum stundum,
verri en í villtum hundum.
Hundum sem að halda jólahátíð góða
ávalt skyldi beinin bjóða.
Bjóða vil ég veislu til á virkum degi.
Þjóðin skilur þetta eigi.
Eigir þú við aukaverkan ýmsra lyfja,
læknir fær þig ljóst að kryfja.
Kryfja margir málin uns þau morkin, sorfin.
Upphafsmeining alveg horfin.
Horfin ertu Harpa mín í hendur Góu.
Þorri og Ýlir að því hlógu.
Hlæja munu, herra einnig, Harpa og Skerpla.
Engin bók er betri en Gerpla.
Gerpla mönnum gagnaðist í gamla daga
á kamrinum með kveisu í maga.
Maga- láttu -málið ekki máltíð stöðva,
kreystu þína kingivöðva.
Kingivöðva Bella beitti, brosti og stundi.
Konan lifði á lýsi og ... skyri.
Skyrið virðist skandínövskum skutlum líka,
það vini Guðna gerir ríka.
Ríkari en Rokkerfeller reyndist Túri;
eiturlyfjasalinn súri.
Súrir eru söngvar þeir sem Satan lofa.
Líka valda leiða og dofa.