Friðþægingin felst í því að fíla lífið
& hugsa ekk´ um árans kífið.
"Kífið eigi", Kristur mælti, "keppist heldur
við að tæma ölsins keldur!"
Engir stuðlar í seinni línunni. Ljótt að sjá. Hopp og hí...
Kífið ekki kannast við né kjaramálin
æðrulausa alheimssálin
Sálarháski hundraðfaldra heljarþrama
- meiriháttar melódrama.
Melódrama leikrit mikið metin eru,
berum skarta brjóstin sveru.
Grámann kíktu á:
Úr heimskringla.net:
Afhending hefur tvær ljóðlínur og enda báðar á tvíliðum sem ríma saman. Fyrri ljóðlínan samanstendur af sex bragliðum en sú seinni af fjórum. Stuðlar í fyrstu línu eru þrír og verður stuðull að vera í þriðja braglið og síðasti stuðull verður að vera í fimmta braglið. Seinni línan er sér um tvo stuðla.
Meló / drama / leikrit / mikið / metin / eru,
berum skarta brjóstin sveru.
Melódrama miðjufólk í mínum huga
aldrei vinstri vonir buga.
[obbossí... smá ofstuðlun á ferð... Skabbi]
Ahh.. það er að sjálfsögðu rétt, klaufinn ég.
Jæja best að laga það.
Að veiða hval er engin smuga
hippar okkar ráðamenn buga.
[obbobbobb... leirburður er ekki vel liðinn á þessum þræði... Skabbi]
Góðan vil ég gaum að skemmtun gefa núna
komdu nú með kerlu snúna!
Þá höldum við áfram...
Bugaður á Baggalútnum bý til vísu.
Er ég nú í ekta krísu?
Krísuvíkurvegagerðarverkstjórarnir
eru hættir. Eða farnir.
farnar eru frillur mínar flestar (muhu)
lúxus er víst límið uhu
Uhu (lím er), Aha (tríó), Ehe (hlátur),
varla fæst af vísu grátur.
Almættið er ekki til í öllum verum
sjáðu hvernig sjálf við erum.
Eru máske menn í grunninn myrkraverur?
Lánar Guð þeim ljósaperur?
Að veiða hval er engin smuga
hippar okkar ráðamenn buga.
[obbobbobb... leirburður er ekki vel liðinn á þessum þræði... Skabbi]
Ásökun Skrabba um leirburð mig hryggir,
Ætti að athuga hvort bílinn í kasko hann tryggir.
Grágrítið flissar eins og fíflið sem hann getur verið og roðnar