— GESTAPÓ —
Lukkudýr Baggalútíu.
» Gestapó   » Efst á baugi
     1, 2, 3  
GESTUR
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hvæsi 4/2/06 20:55

Eftir mikla og víðtæka leit, hefur loks fundist lukkudýr við hæfi.

Það ku vera hin kóbaltbláa tarantúla sem finnst í suðvestur asíu, og er talin afar herská og því tilvalin í stríð.

Sjá hér. http://b2.is/?sida=tengill&id=146475

Hún er 3ja efst á þessum lista.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
dordingull 4/2/06 21:05

Þetta er nú bara hún Sigga frænka.

Köngulóarapakonungsríkisarftakinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Haraldur Austmann 4/2/06 21:07

Sigga frænka þín á Raufarhöfn?

Færeyingur • Einfættur • Mannæta
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Pamela í Dallas 4/2/06 21:07

hvað er fleira á listanum? kannski ýsa?‹finnst ýsa gott lukkudýr›

----Algjörlega gegnsæ og tilgangslaus í tilveru sinni----
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hexia de Trix 4/2/06 21:14

‹Klórar sér í höfðinu›

Ég hélt að Færeyingar væru lukkudýr Baggalútíu?

Alma Mater Baggalútíu • Kakómálaráðherra • Yfirbókavörður Baggalútíu • Forstöðumaður Bóka- og skjalasafns Baggalútíu
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Furðuvera 4/2/06 21:15

Tööööööff tarantúla...

Tish ahh nay hush and fourpence, and an extra point for being so clevaaaaaah!
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hexia de Trix 4/2/06 21:16

Mér finnst samt alltaf eitthvað gruggugt við lífverur með 8 fætur. Þetta hljóta að vera geimverur!

Alma Mater Baggalútíu • Kakómálaráðherra • Yfirbókavörður Baggalútíu • Forstöðumaður Bóka- og skjalasafns Baggalútíu
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
dordingull 4/2/06 21:18

Haraldur Austmann mælti:

Sigga frænka þín á Raufarhöfn?

Já, sú sem át kallinn sinn eftir fyrsta drátt, taldi að hann kæmi að bestum notum sem snakk.
En hvernig vissiru? Þekkist þið eitthvað?

Köngulóarapakonungsríkisarftakinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 4/2/06 21:23

Hexia de Trix mælti:

Mér finnst samt alltaf eitthvað gruggugt við lífverur með 8 fætur. Þetta hljóta að vera geimverur!

‹Skimar í kringum sig›
Geimverur ?! Samsærið verður stöðugt stærra í sniðum ‹Minnist þess svo að nær engir gestanna hjer eru til og því er e.t.v. um tilbúning gerfigreindarforrits að ræða en eigi samsæri›.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Pamela í Dallas 4/2/06 21:24

tilnefni líka sæhest. ‹karldýr sæhestsins gengur með ungana›

----Algjörlega gegnsæ og tilgangslaus í tilveru sinni----
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
dordingull 4/2/06 22:08

Syndir hann ekki með þá?

Köngulóarapakonungsríkisarftakinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Don De Vito 5/2/06 19:26

Hún er nú ekki ljót, þessi kónguló. Hún má eiga það.

Doninn • Stríðsmangari Baggalútíska Heimsveldisins • Innflytjendamálaráðherra, maðurinn með stimpilinn • Settur forstjóri HSHB • Stórlax
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hexia de Trix 5/2/06 19:31

‹Hryllir sig›

Jú víst er hún ljót!

Alma Mater Baggalútíu • Kakómálaráðherra • Yfirbókavörður Baggalútíu • Forstöðumaður Bóka- og skjalasafns Baggalútíu
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Pamela í Dallas 5/2/06 19:31

rétt dordingull, þú ert ekki eins vitlaus og þú lítur út fyrir að vera.

----Algjörlega gegnsæ og tilgangslaus í tilveru sinni----
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Furðuvera 5/2/06 19:54

Hún er mögnuð á litinn, mér finnst hún hrikalega flott.

Tish ahh nay hush and fourpence, and an extra point for being so clevaaaaaah!
GESTUR
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hvæsi 5/2/06 20:23

Og hún heitir "Cobalt blue Tarantula"

‹Magnar upp múgæsingu›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hexia de Trix 5/2/06 20:25

Nafnið byrjar ágætlega, en um leið og „Tarantula“ birtist, þá er þetta orðið ljótt nafn - enda á ljótu dýri, ef dýr skyldi kalla.

‹Heldur því enn fram að áttfætlur hljóti að vera vondar geimverur›

Alma Mater Baggalútíu • Kakómálaráðherra • Yfirbókavörður Baggalútíu • Forstöðumaður Bóka- og skjalasafns Baggalútíu
GESTUR
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hvæsi 5/2/06 20:38

Við bara skýrum hana Tanja. "Kóbaltbláa Tanja" ‹Ljómar upp›

Eða Snati.‹Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið›

LOKAÐ
     1, 2, 3  
» Gestapó   » Efst á baugi   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: