Eftir mikla og víðtæka leit, hefur loks fundist lukkudýr við hæfi.
Það ku vera hin kóbaltbláa tarantúla sem finnst í suðvestur asíu, og er talin afar herská og því tilvalin í stríð.
Sjá hér. http://b2.is/?sida=tengill&id=146475
Hún er 3ja efst á þessum lista.
hvað er fleira á listanum? kannski ýsa?finnst ýsa gott lukkudýr
Klórar sér í höfðinu
Ég hélt að Færeyingar væru lukkudýr Baggalútíu?
Tööööööff tarantúla...
Mér finnst samt alltaf eitthvað gruggugt við lífverur með 8 fætur. Þetta hljóta að vera geimverur!
Sigga frænka þín á Raufarhöfn?
Já, sú sem át kallinn sinn eftir fyrsta drátt, taldi að hann kæmi að bestum notum sem snakk.
En hvernig vissiru? Þekkist þið eitthvað?
Mér finnst samt alltaf eitthvað gruggugt við lífverur með 8 fætur. Þetta hljóta að vera geimverur!
Skimar í kringum sig
Geimverur ?! Samsærið verður stöðugt stærra í sniðum Minnist þess svo að nær engir gestanna hjer eru til og því er e.t.v. um tilbúning gerfigreindarforrits að ræða en eigi samsæri.
tilnefni líka sæhest. karldýr sæhestsins gengur með ungana
Hryllir sig
Jú víst er hún ljót!
rétt dordingull, þú ert ekki eins vitlaus og þú lítur út fyrir að vera.
Hún er mögnuð á litinn, mér finnst hún hrikalega flott.
Nafnið byrjar ágætlega, en um leið og Tarantula birtist, þá er þetta orðið ljótt nafn - enda á ljótu dýri, ef dýr skyldi kalla.
Heldur því enn fram að áttfætlur hljóti að vera vondar geimverur
Við bara skýrum hana Tanja. "Kóbaltbláa Tanja" Ljómar upp
Eða Snati.Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið