Þetta er að verða svo flókið samsæri og svo margt merkilegt hefur komið fram hjer um innstu rök (Gestapó)tilverunnar að hugsanlegt er að brátt munum vjer taka helstu niðurstöðurnar saman í fjelagsriti, auk efnis úr nokkrum öðrum þráðum að viðbættum áður óbirtum samsæriskenningum. Áður þurfum vjer þó að ákveða hvort það sje fyrirhafnarinnar virði með hliðsjón af hve fáir munu lesa það því líkt og sjá má í þræði þessum erum vjer nær eini gesturinn hjer sem er til (Glúmur gæti verið til ef Framsóknarflokkurinn er til en það er augljóslega útilokað að sá flokkur sje til).
Játning.
Enn birtist mér í draumi
sem dýrlegt ævintýr,
hver dagur, sem ég lifði í návist þinni
Svo morgunbjört og fögur
í huga mínum býr,
hver minning um vor sumarstuttu kynni
Og ástarljóð til þín
verður ævikveðja mín,
en innan stundar lýkur göngu minni
Þá birtist mér í draumi
sem dýrlegt ævintýr,
hver dagur, sem ég lifði í návist þinni
Ekki hverfa elsku besti Framsóknarflokkurinn minn!!!!!!!!!!
Fellur í jörðina hágrátandi gjörsamlega bugaður af sorg og missi
Kannski illa gert af mér að bendla Tómas Guðmundsson við Framsókn. Starir þegjandi út í loftið
Játning.
Enn birtist mér í draumi
sem dýrlegt ævintýr,
hver dagur, sem ég lifði í návist þinni
Svo morgunbjört og fögur
í huga mínum býr,
hver minning um vor sumarstuttu kynni
Og ástarljóð til þín
verður ævikveðja mín,
en innan stundar lýkur göngu minni
Þá birtist mér í draumi
sem dýrlegt ævintýr,
hver dagur, sem ég lifði í návist þinni
Ekki hverfa elsku besti Framsóknarflokkurinn minn!!!!!!!!!!
Fellur í jörðina hágrátandi gjörsamlega bugaður af sorg og missi
Finn það á lyktinni að samsærið liggur dýpra en nokkurn gat grunað.
Setur upp sérhönnuðu gasgrímuna og byrjar að búa til kjarnorkubyrgi fyrir Bagglýtinga
Setur upp sérhönnuðu gasgrímuna og byrjar að búa til kjarnorkubyrgi fyrir Bagglýtinga
Er það út af framsóknarfjósalyktinni?
Framsóknarfjósalykt - Æ lov'itt!
Hve margir munu koma til með að búa í byrginu? Þarf að fá sirka tölu upp á stærð, herbergi og fjölda salerna!
Eru ekki bara þeir sem eru til sem þurfa að búa í byrginu. Það gera Vladimir og Mosa frænka. Tveir! Já og kannski Glúmur, það er ekki vitað með hann, en gerið samt ráð fyrir honum.
Klórar sér í höfðinu
Fyrir hönd þeirra örfáu Bagglýtinga er til eru þökkum vjer umhyggjusemina en þessi áform vekja samt hjá oss eina spurningu: Hvernig getur neðanjarðarbyrgi er byggt er af einhverjum er eigi eru til verið til ? Verður enn meira ringlaður
Sko sjáðu til, það er ekki til, bara verið að mæla fyrir því. Eins er með framsóknarfjósalyktina, hún er ekki til þar sem framsókn er ekki til, en lyktin finnst þó greinilega.
Þú skilur er það ekki?
Er þetta ekki bara dæmi um tilgerðarsemi: Eitthvað sem er ekki til býr til eitthvað sem er til.
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Fyrir hönd þeirra örfáu Bagglýtinga er til eru þökkum vjer umhyggjusemina en þessi áform vekja samt hjá oss eina spurningu: Hvernig getur neðanjarðarbyrgi er byggt er af einhverjum er eigi eru til verið til ? Verður enn meira ringlaður
Herra forseti! Vil ég hér með taka það fram að hvorki er ég Glúmur né framsóknarmaður, þar sem hvorugir eru til! Klípur sjálfan sig og fær auman marblett Þetta gæti ég nú varla, væri ég ekki til!
Viljið þér fá Forsetasvítuna í byrginu, skuluð þér sætta yður við að vér séum til!
Strunsar út af sviðinu og byrjar á helvítis byrginu
Leitar eftir aðstoð Offara við smíði byrgisins