Hr. Fuckov. Ef Glúmur er ekki til, og ritstjórn er ekki til, við hverja eruð þér þá að ræða?
Fær vægt sjokk vegna þess að hann er hugsanlega ímyndun hr. Fuckovs
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Þetta er góð spurning er vjer höfðum eigi veitt nægjanlega athygli fyrr en nú. Helst dettur oss í hug að um sje að ræða afar fullkomið gerfigreindarforrit Íhugar alvarlega að nota sk. Turing próf á gesti hjer.
Það hefur nú alltaf verið vitað að ég sé ekki til. Hinsvegar er spurning um hvort Vladimir sé framsóknarmaður? Og hver er þessi Bagglýtingur sem hann talar um?
Starir þegjandi út í loftið
Engir erum vjer Framsóknarmaður og erum vjer því til og erum eigi Glúmur. Hinn Bagglýtingurinn er Mosa frænka. Hvorki er hún Glúmur nje gerfigreindarforrit. Hún er langtum of fögur til að geta verið Glúmur í dulargerfi, jafnvel þó notuð væru fullkomnustu dulargerfi er völ er á. Að auki er hún gjörólík öllum þeim tölvum og hugbúnaði er vjer vitum um.
Ef vér skiljum kenningar yðar rétt, hr. Vladimir, þá erum vér sami persónuleiki og Glúmur, og þar af leiðandi eigi til. En nú vill svo til að hvorki erum vér Glúmur, né heldur stuðningsmaður Framsóknarflokksins, enda er hann eigi nógu framsækinn fyrir smekk voran. Einnig er greind vor slík að eigi er kostur á að falsa hana með nokkrum hætti. Að þessu athuguðu væri vel þegið ef þér sæuð yður fært að fjölga um einn í hópi Bagglýtinga er til eru í raun, nema svo ægilega skemmtilega vilji til að vér deilum persónu með yður, því eigi getum vér heldur verið Mosa.
Gengur um gólf og veltir alvarlega fyrir sér hvort súg sé til eður ei.
Verður brjálaður og sér framsóknarmenn allstaðar Vík frá mér Satan.Er lokaður inn á órólegu deildinni á klepp
Ég hugsa!
Þú lýgur því! Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Verður brjálaður og sér framsóknarmenn allstaðar Vík frá mér Satan.Er lokaður inn á órólegu deildinni á klepp
Ég efast um að það sé svo mikið til af þeim að hægt sé að sjá þá allstaðar.
þetta er aðeins hægt að útskýra á einn hátt. Hann er glúmur, og sér alla ,,baggalútinga" fyrir sér. Áttar sig ekki á því að hann sér sig sjálfan. Greyið litla.
Skyndilega sló þögn á salinn. Þetta er sérdeilis grunsamlegt.
Þetta er ekkert grunsamlegt,Framsóknarflokkurinn náði völdum á þessum þræði í smá tíma og blokkeraði hann
Þar sem eitthvað sem ekki er til ræður ríkjum þar er augljóslega þögn. Þess vegna er þögn þar sem Framsóknarflokkurinn ræður ríkjum.
Verður þrumulostinn
Verður þrumulostinn
Uppgötvar að hann prumpaði Fyrirgefðu Ferrari minn.. þetta var alls ekki ætlunin!
Setur aftur upp grímuna