Þessi Framsóknarflokkur... ég var í mestu makindum að hallmæla framsóknarflokknum á MSN fyrir nokkrum mínútum og mér bara hent út af MSN... er framsóknarsauðkindin komin með ítök í Mækrósoft... ég hallast að því.
Furðu útbreiddur finnst oss sá misskilningur að til sje eitthvert 'MSN'. Þetta sk. 'MSN' er ekki til. Það skýrir að ei skuli unnt að hallmæla Framsóknarflokknum þar.
Ég sé að samsærið er djúpstæðara en ég gerði mér grein fyrir... Starir þegjandi út í loftið
Samsærið er dýpra en þú heldur, Skabbi minn. Framsóknarflokkurinn er nefnilega ekki heldur til. Fjölmiðlarnir hafa bara komið sér saman um að ljúga því að fólki að til sé eitthvað í líkingu við þennan flokk.
Það útskýrir afhverju hann hefur enga stefnu, ekkert fylgi, enga flokksmeðlimi og engar áþreifanlegar sannanir fyrir tilvist hans. Síðan er bætt gráu ofan á svart með því að segja fólki að þetta sitji í ríkisstjórn!
Hlær stórkarlalega að trúgirni pöpulsins
Já, og það sem meira er: Bjargmundur er ekki heldur til vegna þess að hann er Framsóknarmaður.
Bjargmundur er ekki til, Glúmur er Bjargmundur líkt og allir gestir hjer að tveimur undanskildum (og e.t.v. ritstjórn) og Glúmur er til því annars væri einmanalegra hjer en raun ber vitni þannig að eina niðurstaðan er hægt er að draga af þessu er að einhver hluti þeirra upplýsinga er fullyrðingin fremst í innleggi þessu byggist á sje eigi rjettur sem gerir samsærið enn flóknara en áður var talið þannig að hugsanlega þurfum vjer brátt að endurvekja hinn fræga samsæriskenningaþráð, þó sagt með þeim fyrirvara að samsæri það er um er rætt hafi eigi náð að hafa þeir afleiðingar að samsæriskenningaþráðurinn sje ekki til.
Er ekki Glúmur framsóknarmaður... ef hann er framsóknarmaður þá er hann ekki til og þar sem hann er ekki til þá eru flest okkar ekki til... Titrar af skelfingu
Ég er margt, herrar mínir, en Framsóknarmaður eða Glúmur eru hugtök sem tilheyra ekki þeim lista.
Ef ég væri Glúmur, væri ég frekar gamall brandari, því að tvö og hálft ár verða bráðum liðin frá skráningu minni á þennan vef.
Ef ég væri Framsóknarmaður, væri ég enn eldri brandari, því að Framsóknarflokkurinn var og hét þegar bændastéttin var enn til, einhversstaðar nær hinum myrku miðöldum.
Er sárlega móðgaður en reynir þó að halda höfði
Er ekki Glúmur framsóknarmaður... ef hann er framsóknarmaður þá er hann ekki til og þar sem hann er ekki til þá eru flest okkar ekki til... Titrar af skelfingu
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Þá er hugsanlegt að hjer sjeu einungis vjer, einn annar Bagglýtingur og svo hugsanlega eitthvað af ritstjórninni sje einhver úr ritstjórninni eigi Glúmur.
Hvernig geturðu verið viss um að ritstjórnin sé til?
Klórar sér í höfðinu
Vjer getum eigi verið vissir um það, þess vegna sögðum vjer hugsanlega eitthvað af ritstjórninni. Það eina sem vjer vitum með fullri vissu er að að það gildir um oss og einn annan Bagglýting að eigi erum vjer Glúmur og að vjer erum til.
Ég sé það núna. Þetta er greinilega samsæri.
Ljómar upp eins og ljósapera
Tekur eigi eftir því sem Krókur segir því Krókur er ei sá Bagglýtingur er eigi er Glúmur og er hann því ekki til
Það hefur nú alltaf verið vitað að ég sé ekki til. Hinsvegar er spurning um hvort Vladimir sé framsóknarmaður? Og hver er þessi Bagglýtingur sem hann talar um?
Starir þegjandi út í loftið
Hr. Fuckov. Ef Glúmur er ekki til, og ritstjórn er ekki til, við hverja eruð þér þá að ræða?
Fær vægt sjokk vegna þess að hann er hugsanlega ímyndun hr. Fuckovs
Hr. Fuckov. Ef Glúmur er ekki til, og ritstjórn er ekki til, við hverja eruð þér þá að ræða?
Fær vægt sjokk vegna þess að hann er hugsanlega ímyndun hr. Fuckovs
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Þetta er góð spurning er vjer höfðum eigi veitt nægjanlega athygli fyrr en nú. Helst dettur oss í hug að um sje að ræða afar fullkomið gerfigreindarforrit Íhugar alvarlega að nota sk. Turing próf á gesti hjer.
Það hefur nú alltaf verið vitað að ég sé ekki til. Hinsvegar er spurning um hvort Vladimir sé framsóknarmaður? Og hver er þessi Bagglýtingur sem hann talar um?
Starir þegjandi út í loftið
Engir erum vjer Framsóknarmaður og erum vjer því til og erum eigi Glúmur. Hinn Bagglýtingurinn er Mosa frænka. Hvorki er hún Glúmur nje gerfigreindarforrit. Hún er langtum of fögur til að geta verið Glúmur í dulargerfi, jafnvel þó notuð væru fullkomnustu dulargerfi er völ er á. Að auki er hún gjörólík öllum þeim tölvum og hugbúnaði er vjer vitum um.
Aha! setur upp sjerlokk-hattinn Mosa frænka er kvenkyns spegilmynd yðar, hr. Fuckov, og ég (og allir aðrir gestapóar) erum það sjálf sem þér skapið yður hverju sinni, til að þóknast kóbaltískum þörfum yðar!
Hverfur í reyk sjálftortímingar sökum röksemdarfærslu - nema um eitt sjálf Glúms enn sé að ræða. Veltir tilvist sinni fyrir sér
Þegar komið er út í tilvistarkreppu er aðeins eitt svar; Ákavíti! Og nóg af því!
skálar