Glúmur Angan, lést við blóðtöku að heimili sínu föstudaginn 10. október. Talið er að Glúmur hafi sofnað við blóðtökuna, sem hann framkvæmdi sjálfur í þeirri von um að endurvinna "ÚltraKóbalt".
Glúmur lætur eftir sig langan bálk fásinnu og þrettán uppkomnar ranghugmyndir. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er vinsamlegast bent á Sarpinn og F.Á.U.Á.U.Ú.G.
Jæja.
Þá er einum vitleysingnum færra.
En eru ekki allar líkur á að hann gangi aftur eins til að pirra okkur, rétt eins og nafni hans sem var buffaður af Gretti í gamla daga?
Hver skrifaði annars dánartilkynninguna? öskrar af hræðslu og hoppar út um gluggann

Nafni? Hann hét Glámur, Glámur ekki Glúmur.
Glúmur Angan, lést við blóðtöku að heimili sínu föstudaginn 10. október. Talið er að Glúmur hafi sofnað við blóðtökuna, sem hann framkvæmdi sjálfur í þeirri von um að endurvinna "ÚltraKóbalt".
Glúmur lætur eftir sig langan bálk fásinnu og þrettán uppkomnar ranghugmyndir. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er vinsamlegast bent á Sarpinn og F.Á.U.Á.U.Ú.G.
æ, hvur fjandinn... Veit hreinlega ekki hvað hann á að segja en finnur svo tár leka niður vinstri kinn og neðri vörina byrja að titra....
Eg skal sjá um jarðarförina og sjá til þess að hann gangi ekki aftur. fer með faðir vorið og kveikir á kerti
Gaman væri ef Glúmur gengi aftur hér á spjallborðinu.
Og enn skemmtilegra væri ef Glúmur myndi mæta í miðilsþáttinn á stöð 2, Lífseyrað, eða hvað hann nú heitir.
Sorglegt ef satt er. En getur verið að hér sé um gabb að ræða. Er mögulegt að Glúmur hafi sjálfur sent út dánartilkynningu sína til að sjá hvort minningargreinar um hann myndu fylla síður Baggalúts næstu dægrin.
Kannski ljótt að setja þetta fram, en sé hann í alvöru látinn sakna ég hans, því Glúmur var glöggur maður og greindur. [best að hætta núna því þetta er að þróast í að verða minningargrein] Blessuð sé minning Glúms.
Ég votta fjölskyldu hans og öllum sem hann skuldaði reiðufé samúð mína.
Gengur aftur? Allir vita að draugur kemur alltaf inn sömu leið og hann kom út, því verður að brjóta niður vegg og bera hann út þaðan, hlaða svo vegginn aftur til þess að koma veg fyrir afturgöngu hans.
Jarðarför? Væri ekki viðeigandi að hann færi bálförum? Ég held að hann eigi það skilið, þetta yndi, hann var alltaf svo hlýr og blíður, sérstaklega þegar hann var að reyna að fá fjármuni að láni.
Mín spurning.... ef hann er jafndauðr og hann þykist vera, hver skrifaði þá þeza dánartilkynningu?
Glúmur Angan, lést við blóðtöku að heimili sínu föstudaginn 10. október. Talið er að Glúmur hafi sofnað við blóðtökuna, sem hann framkvæmdi sjálfur í þeirri von um að endurvinna "ÚltraKóbalt".
Glúmur lætur eftir sig langan bálk fásinnu og þrettán uppkomnar ranghugmyndir. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er vinsamlegast bent á Sarpinn og F.Á.U.Á.U.Ú.G.
Ég vill votta fjölskyldu hins látna samúð mína um leið og ég vill koma þeirrri ósk á framfæri að hinn látni sjái sér fært að ganga aftur á umræðutorgi baggalúts. Brestur í óstöðvandi grát og gluggar í símaskránna í von um að finna eitthvað, sér til huggunar
Nafni? Hann hét Glámur, Glámur ekki Glúmur.
Afsakið - þetta misritaðist hjá mér.
Ég ætlaði að segja nufni hans.
Vjer vottum samúð öllum þeim sem við á og vonum jafnframt að um sje að ræða gabb í þeim tilgangi að villa um fyrir andstæðingum FÁUÁUÚG, KALÍS og Geimbrasksstofnunarinnar. Ef svo er eigi vonum vjer að Glúmur gangi aftur jafnt hjer á Baggalúti sem og annarsstaðar líkt og Glámur næstum-nafni hans forðum því þannig verður hann andstæðingum vorum mun skeinuhættari en í lifanda lífi því ósýnileiki getur verið máttugt vopn.
Hinn óskyldi og ógetni ættingi Baggalúts er nú fallinn frá.
Glúmur er dauður, lengi lifi Baggalútur!
Tek að mér að drekka í erfidrikkjunni
Hinn óskyldi og ógetni ættingi Baggalúts er nú fallinn frá.
Glúmur er dauður, lengi lifi Baggalútur!
Eruð þjer að gefa í skyn að Glúmur hafi eigi verið til heldur hafi hann verið tilbúningur á vegum Baggalútsmanna ?!
Lifi samsæriskenningar !!