Auglýsingin á nýja þyrlupallinum mínum hlómaði svona:
Glæsilegur jafnarma átthyrndur Flexotron þyrlupallur árgerð ´05, lítið notaður, stórt H í miðjunni sem einnig er hægt að lesa sem I frá öðru sjónarhorni, með krómhúðuðum köntum og 8 stoðfótum, burðargeta er 38 tonn, einföld og þægileg hönnun. Áhvílandi lán 8,4 millj. ath. skipti möguleg á móti Razor svifnökkva, ekki eldri en ´88.
Þessi kaup litu mun betur út og því ákvað ég að slá til.
eyðir restinni af ævifénu í sparnað
Væntanlega á Kolbeinsey. Verðlagið á fasteignum nú til dags. Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Hvaða hvaða??
NEEIII!! KING KONG DÓ!!!
King Kong Dó? Er það ný bardagaíþrótt?
NEEIII!! KING KONG DÓ!!!
King Kong Dó? Er það ný bardagaíþrótt?
Jújú Þarfi minn, það stemmir og æðsta stig heitir víst Klifrandi Api!
Kláraðist uppboðið án þess að ég vissi? Klórar sér í höfðinu
Maður myndi nú þurfa að vera afar heimsk/ur til að fatta það ekki.
Maður myndi nú þurfa að vera afar heimsk/ur til að kjafta samt frá endanum, vitandi að það eru óvitar líkt og ég sjálf á ferli.
Springur úr hlátri
Þetta jafnast nú eiginlega alveg á við það þegar einhver fór í fýlu hér um árið við það að frétta að Titanic myndi sökkva í bíómyndinni!
Annars virðist ég vera orðin of sein að bjóða í aulann. Sem er slæmt, ég ætlaði að bjóða tvo lítra af kakói auk tækifæris til að kynnast Prímadonnu og Dívu betur (lesist: verða barnapía).
Glottir
Sækir um starfið
Er mannsal ekki ólöglegt í Baggalútíu? Ég hélt að það mætti bara höndla með sálir hér.
Annars vantar mig ekki aula. Hins vegar væri ég til í að kaupa gáfumenni á góðan pening (lesist: drasl úr geymslunni).
Er þar nokkuð úreldur sópur með vörpudrifi sem hægt er að gera við?