Velkomin Hildigunnur og megir þú eiga langa ævi hér á Baggalúti.
Velkomin vinan.
Það er alltaf eitthvað í pottinum hjá mér ef þú verður svöng.
Já og, Skál ! xT
Mætir með svipuna og glott á þráðinn
Finn ég lykt af nýliða?
Hlær illskulega
Vjer bjóðum Hildigunni hjer með formlega velkomna.
Já, á maður að kynna sig. Það er reyndar sjálfsögð kurteisi, en ég þorði varla eftir að hafa lesið Skottu-þráðinn. Skildi ekki alveg umræðuna.
Það bendir til að afar vel hafi tekist að taka á móti Skottu Ljómar upp.
Velkomin, Hildigunnur. Alltaf fagnaðarefni þegar vellesin kona bœtist í hópinn hér.
En ég hef áhyggjur af Hakuchi:
Það er alger óþarfi að fela sig bak við skáldsögunöfn.
Ertu að gefa í skyn að Njála sé tómur skáldskapur?
Kannski veruleikaskyn Hakuchis hafi brenglast lítið eitt og ímyndunaraflið farið á flug sökum áhrifa frá hinum ímynduðu raunheimum því hann hefur óvenju lítið sjest hjer undanfarið. Einnig gæti tími og rúm umhverfis hann hafa brenglast lítillega hafi hann (hugsanlega óafvitandi) verið nálægt skrumgleypinum hættulega lengi. Sjer í lagi er varasamt að sofa mikið í bognu rúmi.
Enginn hefur Hildi unnið nema Hildigunnið... velkomin...
Jújú, það getur svosum verið fallegt í Rángarvallasýslu, seisei mikil óskup. Hún er samt engin Árnessýsla...
Seid lustig und trinkt durstig!
xT
Velkomin, Hildigunnur. Alltaf fagnaðarefni þegar vellesin kona bœtist í hópinn hér.
En ég hef áhyggjur af Hakuchi:
Það er alger óþarfi að fela sig bak við skáldsögunöfn.
Ertu að gefa í skyn að Njála sé tómur skáldskapur?
Fyrirgefðu Mosa mín, þetta var auðvitað della í mér. Njála er sannarlega tómur skáldskapur. Hún er tóm af skáldskap og barmafull af sannleik. Eins og allar Íslendingasögur.
Núna þarft þú að fara að velja þér mynd Hildigunnur, þegar þú ert komin með tíu innlegg.
Má ég mæla með myndinni neðst til vinstri í myndasafninu? Ef ekki, þá pottþétt þeirri efst til hægri. (Ekki það að það sé mikið úrval fyrir kvenkyns notendur)
Bíður í eftirvæntingu
Ef þú finnur ekkert í safninu þá getur þú sent Enteri mynd sem þú vilt nota. Hann er yfirleitt liðtækur við að líma þær yfir spurningamerkið, enda eina almennilega afsökunin fyrir hann til að sniffa UHU lím.
Ég veit það ekki..ég sé Enter aldrei gera neitt annað en að föndra, og þá yfirleitt með risastóra límstifti sér við hlið.
Þér að segja, konungur, þá er utanríkisráðuneytið með sér-fríverslunarsamning við Þýskaland sem nær aðeins yfir verslun með föndurlím. Hver maður ætti að geta séð að þetta er e.t.v. full langt gengið í fíkninni, þegar milliríkjasamskipti eru farin að snúast í kringum eina og eina manneskju, þó svo að þeir séu guðir..
Ef þú finnur ekkert í safninu þá getur þú sent Enteri mynd sem þú vilt nota. Hann er yfirleitt liðtækur við að líma þær yfir spurningamerkið, enda eina almennilega afsökunin fyrir hann til að sniffa UHU lím.
Nú sé ég af hverju þeir voru svona hressir við upptökur á laginu Föndurstund.
Komdu blessuð og sæl. Hafðu gaman af veru þinni hérna. Ljómar upp
Sæl, Hildigunnur. Mitt nafn fékk ég nú bara hjá foreldrum mínum Hundblauti Vatne og Sundlaugu Vatnsdal. Ég segi sem Hakuchi að það er alger óþarfi að fela sig á bak við dulnefni.
Flýttu þér nú að setja inn mynd af þér svo ég viti hvor það er freistand.........eh... þorandi að bjóða þér í sundGlottir eins og fífl
P.S. Rétt er það að fagurt er víða í Rangárvallasýslu og ekki síður í Árnessýslu, þó jafnast ekkert á við heimasveit mína, Ýsufjörð, þar er landslagið fegurst, loftið heilnæmast, karlmennirnir sterkastir og kvenfólkið vænst.
Hristir höfuðið vegna veruleikafirringar hr. Vatne
Ert þú sú Hildigunnur, er var lýst svo: „Hún var skörungur mikill og kvenna fríðust sýnum. Hún var svo hög, að fáar konur voru, þær er hagari voru. Hún var allra kvenna grimmust og skaphörðust og drengur góður, þar sem vel skyldi vera.“?