Sælt veri fólkið.
Mér var skipað af leiðbeiningunum að kynna mig hér. Skotta er nafnið og það mun vera nokkuð lýsandi fyrir mig. Hlakka til að kynnast þessu merka samfélagi betur.
Góðar stundir
Skotta -
Velkomin Skotta! Stekkur hæð sína
Já, sæl vertu. Ég sé að þú ert komin með mynd, og er það vel. Láttu bara fara vel um þig, og passaðu þig á breiðnefjunum.
Þakka þér einnig Þarfagreinir. Ég skal sko passa mig á þessum kvikindum.
Ég býð þig velkomna Skotta og óska þér langlífis hér á Baggalúti.
Svo vantar okkur bara Bölla til að óska þér kynlífs.
Búúúújaa!
Þakka ykkur fyrir strákar Ljómar upp
Hvar er þessi Bölli annars? Mér veitti ekki af smá skotti Flissar
Sæl Skotta. Guð veri alla tíð með þér. Þú ert æðislega sæt.
Viltu vera með mér og koma að yrkja?
Bölli heitir fullu nafni Bölverkur. Hann er stundum svolítið óheflaður en að öðru leyti besta skinn. Noh, þarna kom hann bara í eigin persónu.
Vjer bjóðum yður (þ.e. Skottu) hjer með formlega velkomna hingað á Gestapó.
Sæl Skotta. Guð veri alla tíð með þér. Þú ert æðislega sæt.
Viltu vera með mér og koma að yrkja?
Einn tungulipur með ólíkindum. Ég þakka hrósið og skal yrkja þegar andinn kemur yfir mig. Nú eða þegar ég er búin að sitja sveitt yfir einni ferskeytlu í fjóra daga og er orðin nokkurnvegin viss um að hún sé rétt.
Vjer bjóðum yður (þ.e. Skottu) hjer með formlega velkomna hingað á Gestapó.
Þakka þér Hr. Forseti.
Það er rúmur klukkutími síðan þú fæddist, og nú þegar þekkirðu fólk með enbættisnöfnum. Horfir tortriggnisaugum á "níliðann" Ertu ekki bara Glúmur eins og allir hinir?
Hlýtur að hafa verið laumupúki í alllangan tíma áður en Skotta þessi kynnti sig. Ljómar upp Velkomin Skotta. Ekki mætti vera að þú sért Hamingjuskotta líka ?