Öll þekkjum við þann aldagamla sið að kveðast á. Í takt við nýja tíma hvet ég fólk til að breyta eilítið til og prófa að kveðast á með atómljóðum.
Mér þætti vænt um það að friðargæsluliðinn hér festi þennan þráð efst uppi með öðrum föstum þráðum.
Snúum okkur þá að efninu. Hver mælandi kastar fram nýjum fyrri-hluta og sá næsti botnar. Stuðlar, rím og hefðbundar bragreglur eru leyfilegar en ekki nauðsynlegar og allt að því óæskilegar. Hefjum leikinn!
Kveðumst, kveðumst!
kappar og ljóðaskrár
Bein og pappakassar!
Vesgú
Vesgú!
Já vesgú, gessovel!
Elsku vinur, ástarpungur...
gjössofokkingsvel!
gjössofokkingsvel!
bitte!
please!
fokkingsvelgjösso!
blease!
pitte!
velgjössofokkings!
blitte!
pease!
Fáðérkaffi!
Fáðérkaffi
litla sæta býfluga á barmi taugaáfalls
baugar kringum augun
og barn liggur dautt í rekkju
Gleymduðér, sestu niður
fáðu þér svart og sterkt
Drullumall
hlewagastiR,
þú kæri bróðir hauskúpu
taktu öxi úr höfði þínu!
helltu upp á grænt te!
farðu í sund!
eða náðu þér í hjólasög
og sagaðu hausa af spriklandi frískum börnum þurfalinga
því þinn er mátturinn,
hlewagastiR.
skemmti sér konunglega við skrifin
Snæfellsnes
Snæfellsnes
þú úrkynjaða brjóst Íslands
eða bæklaða hönd
farðu í aðgerð
Aðgerða er krafist!
Eldri borgarar þessa lands eru hættir að deyja!
Laugardalur
Laugardalur
gardalur
dalur
ur
dular
dularrag
dularraggaul
annars er klukkan korter gemngin í fjegur
Brend er jörð.
Fluor þekur.
Svörður sviðin,
vatnið eitrað.
Brennisteinn Framsóknarflokksins,
banamein lands.
Landis gyðja Valgerður
Úr höfði þínu stökkva álver
Valgerði heita borgirnar í kringum álverin
Valgerður þú liggur á hnetti okkar jörðinni
eins og eggi
Annað hvort mun fiðraðu ungi brjóta skurn jarðarinnar
og fljúga til himnaríkis
eða þú éta undan þér þetta litla egg þitt.
Þitt.
Þitt er mitt og mitt er þitt.
Snú.
Þitt er mitt og mitt er þitt.
Lax.
Girðingavinna
girðingavinna - ó að vera maður
ógirðingavinna - að vera dýr
því manndómnum fylgir vinna og ábyrgð og dýpt andans - já ég segi dómnum
en dýrseðlið er samgróið frelsinu
Frelsinu ábyrgð fylgir: Úraníum, nei !
Plútóníum !
Plútó !
Nýjum Plútó, nýjum
Plútó nýr:
Ubjeþrír
þrettán, 7-9-13
Tvöhundruðþrjátíuogníu
nýjum Plútó-níum
Veit einhver hvort til er lækning við næturóþolssvefngalsa ?
Ambindrylla
Ambindrylla
ambátt andskotans
gerðist fögur - og - og
fór undireins
Hvernig heim ----- urinn
væri
ef
Gapandi
Gapandi rotta
æðir eftir lestarteinunum
Kaffidropi læðist inn í gin hennar
Merild, merild, merild
Mikið er Mikki mús mikill.
Mikill ótti læðist að...
Hinir dramatísku hafa vaknað!
Höfuð þitt
eins
og
sprenging
á
skurðstofu.
Himininn sortnar.
Sortnar Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sérDæsir mæðulega og lítur út um gluggannGlottir eins og fíflGefur frá sér vellíðunarstunuStekkur hæð sínaLjómar uppStyður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er Kviknar?
kviknar kviknar e, er = sem.
Sem er eitthvað skver
kver kver geisir sem er,
geisist hann á stjörnufák
fákur er hver sem er
hver kísir er og nú ég kveð
kveramíkja