— GESTAPÓ —
Hver gerði hvað á ballinu ?
» Gestapó   » Efst á baugi
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst

Hverjir voru þarna ? hver var kystur og hver var þyrstur?Hver söng hæst og hver var æst ?

Alt þettað og mikið meira viljum við vita. við sem pössuðum börnin ykkar og vökvuðum stjúpmóðursfíólunum ykkar og jafnvel skemtum mökum ykkar á meðan þið voruð á fyllerí langt fram á nótt.

Við sem tökumst á við erfiðleika morgundagsins meðan þið sofið úr ykkur kynsvall næturinnar. viljum vita. eigum rétt á svörum.

Þið ábyrgðarlausu nautnaseggir og kollur meigi timburmennirnir ógurlegu heimsækja ykkur í sjö daga og sjö nætur ef þið svarið ekki undringum okkar sóma og reglufólks sem létu skyldustörfinn sytja í fyrirrúmi.

Er það virkilega meininginn að sköllóttir ístrubelgir og drykkjuhrútar delikvintis með blásaklausar kornungar stúlkur eins og Litla Laufblaðið og Nornina og dragi þær niður í djúpa siðaspillingu?

Er það virkilega meininginn að þið lassarónar eyðileggið þröngan mentaveg Gyðju norðurljóssins á köldustu Akureyri?

Má ekki Litla laufblaðið sem nýlegga fjéll af greininni fljúga í átt að aldingarði Edens
á fund Adams síns í hinu óflekkaða Danaveldi?

Hvernig liti heimurinn út ef allir dansibölluðu fram á rauða nótt og engin keyrði Hafnarfjarðar stætó á morgun?

Áfengi er skaðlegt eiturlyf sem brýtur menn niður bæði andlega líkamlega og félagslega • Það breytir persónuleikanum og deyfir siðferðisvitundina. Það er einnig nærandi og styrkjadi , gefur hraustlegt og gott útlit og bætir meltinguna .
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Þarfagreinir 21/1/06 17:53

Ég kann ekki við svona aðdróttanir. Ég er siðvandur maður og hef ávallt góða siði efst í huga.

‹Starir þegjandi út í loftið›

Greifinn af Þarfaþingi • Fullur símamálaráðherra • Yfiryfirheyrslumeistari Rannsóknarréttar Skoffínsins • Sjálfskipaður últraséntilmaður og öðlingur
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Litla Laufblaðið 21/1/06 18:11

Gísli Eiríkur og Helgi mælti:

Hverjir voru þarna ? hver var kystur og hver var þyrstur?Hver söng hæst og hver var æst ?

Fullt af fólki. Allir. Allir. AnnaPanna. Norna. ‹Ljómar upp›

Krúsídúlla Gestapó.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nornin 21/1/06 18:42

Gísli Eiríkur og Helgi mælti:

Er það virkilega meininginn að sköllóttir ístrubelgir og drykkjuhrútar delikvintis með blásaklausar kornungar stúlkur eins og Litla Laufblaðið og Nornina og dragi þær niður í djúpa siðaspillingu?

Þeir reyndu það með að hella í okkur áfengi og fara ljúfum orðum um ásjónur okkar og atgerfi. En það er erfitt að spilla viljugum ‹Ljómar upp›

Gísli Eiríkur og Helgi mælti:

Er það virkilega meininginn að þið lassarónar eyðileggið þröngan mentaveg Gyðju norðurljóssins á köldustu Akureyri?

Þú heillar mig upp úr skónum með blíðmælgi GEH!
En þessi Gyðja er frekar í að spilla öðrum en að láta spillast ‹Gefur frá sér vellíðunarstunu›

Femme fatale • Puppetmistress • Eigandi Júpíters • 
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Dula 21/1/06 20:48

Skemmti mér konunglega en sá engan af þessum hausum þar.

Kosta og kynjamálaráðherra Baggalútíu. •  Forsetafrú, líka PRINSESSA og settur heilbrigðismálaráðherra (skv ráðherra og embættismannalista baggalútíu ) •  Gestgjafi Duludjammsins. • 22. kast er mitt !
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Litla Laufblaðið 21/1/06 21:48

Dularfulli maðurinn mælti:

Skemmti mér konunglega en sá engan af þessum hausum þar.

Æ ertu blindur greyið mitt?

Krúsídúlla Gestapó.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Offari 21/1/06 23:19

Út með það! Hvað gerðist?

KauBfélagsstjórinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
sphinxx 21/1/06 23:37

Hvers eigum við að gjalda sem ekki gátum komist sökum anna ég t.d hefði þurft að vita þetta minnst með 2 mánaða fyrirvara. Svona út með sprokið hverjir voru að skandalast eða með öðrum orðum hver skemmti sér best.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nornin 22/1/06 01:35

Við dandöluðumst öll með öllum ‹flissar› Á afar platónskann hátt þó!
Og ég skemmti mér örugglega best‹Ljómar upp› Ég kom alla vegana ekki heim fyrr en klukkan 7 í morgun xT

Femme fatale • Puppetmistress • Eigandi Júpíters • 
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
sphinxx 22/1/06 01:37

SKANDALL!!!!!.... en skál fyrir þvíxT

LOKAÐ
» Gestapó   » Efst á baugi   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: