Vegna þess hve erfitt er að ná sér niður eftir skemmtanahald jólana og brotthvarfs Laufblaðsins af klakanum er blásið til hittings á Grand rokk næstkomandi föstudagskvöld. Gestapóar nær og fjær eru boðnir velkomnir til drykkju og djamms. Einu skilyrðin eru að viðkomandi sé eldri en 20 ára (vegna aldurstakmarkana) og í góðu skapi!
Júbbbíí! Er einhver klukka sett á herlegheitin?
Þið alveg hreint sigtið út helgarnar sem ég er EKKI í borginni! Kjökrar
Vona annars að það verða æðislega gaman hjá ykkur!
Einu skilyrðin eru að viðkomandi sé eldri en 20 ára (vegna aldurstakmarkana) og í góðu skapi!
Mér skilst ekki.
Já ætli það sé ekki málið að mæta svona um 21:00 til 22:00 í herlegheitin Ljómar upp
Þú þarft ekkert að vera í fötum ferkar en þú vilt Hvæsi. Einu skilyrðin sem ég set eru sú að þú sért eldri en 20 ára og í góðu skapi. Skilyrði dyravarðanna eru svo annað mál sem ég veit ekkert um.
Veit einhver hjer hvort Grandrokk leyfir geislavirkt plútóníum á staðnum ?
Ekki sé ég neitt í lögunum sem bannar það allavega. Plútóníum sko... Stendur heldur ekkert um nekt. Klórar sér í höfðinu
Já já Vlad minn. Um að gera að koma með smá plútóníum með sér.
Og Hvæsi, komdu bara ber! Það verður alltaf lítið laufblað þarna til að skýla þér ef þú ferð eitthvað hjá þér. Blikkar og flissar eins og bullukollur
Veit einhver hjer hvort Grandrokk leyfir geislavirkt plútóníum á staðnum ?
Ég held að þeir leyfi næstum hvað sem er á Grand. En passaðu bara að vera ekki með úraníum líka, þar sem sú blanda er frekar skaðleg.
Og P.s. Ég kem Laufið mitt knúsar Laufið
Reykmettunin í öskubakkanum Grandrokk er slík að hún mun jafnvel kæfa allt líf úr Plútóníuminu. Sparaðu það og farðu frekar með geislavirkan úrgang. Mér skilst að gólfin séu þvegin upp úr slíku á Grandinum.
Vei vei! Mikið verður gaman að sjá þig Nornin mín.
Ætti maður að slá til og mæta?Roðnar örlítið
Ef að Hvæsi þorir þá þori ég. Reynir að vera voða hugrökk
Æi, Rósin mín... mættu endilega... það væri gaman að hitta þig Ljómar upp
Og Hvæsi... þú skuldar mér nudd Blikkar daðurslega
Þarf að mæta vopnaður? Þetta hljómar eins og hættuspil.