HEyrðu ég hlýt að hafa komið of snemma... Hrökklast aftur á bak og hrasar við Fann ósköp fáa Gestapóa [Ergo, engan] innan veggja Grand Rokks Klórar sér í höfðinu Gekk um öll gólf klukkan 21:30 og leitaði að kunnulegum andlitum, sá ekki einn einasta. Efri hæðin lokuð af vegna þess að veriðavar að púsla saman Megasi og Súkkati. Skrambans vesen á mér. Komu allir tískulega seint á staðinn?
Æi elsku Ewing.
Við Laufið vorum a la strætó og hann var hræðilega lengi á leiðinni niður í bæ.
Vorum ekki komnar fyrr en rétt rúmlega 22 á Grandið Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann Leitt að þú hafir misst af okkur.
Nornin er einhverstaðar hérna svo hvernig var á grand rokk misstum við af djammi ársins Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Ja, þið misstuð af ótrúlega skemmtilegum tónleikum með Megasukk og náttúrulega misstuð þið af því að hitta mig Flissar Hvort þetta var djamm ársins skal ég segja til um í desember... en djöfull var gaman!
Ég skrapp bara heim þarna rúmlega 3 og fór svo aftur í bæinn Ljómar upp
Blótar herfilega og rífur hár sitt Og missti ég af drukknum konum ??Brestur í óstöðvandi grát
Ójá. Fullt og milljón. En ég held að þær séu of eggjandi fyrir ykkur Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Ég vil ekki bera ábrgð á hjartaáföllum út um allar sveitir.
Segir maðurinn sem hefur ekki séð þessar myndir. Maðurinn sem sá þær segir aftur á móti ekki neitt því þær reyndust banvænar.
Slæst í lið með offara Sýniði nú greyjunum sem komust ekki hverju þeir misstu af.
Setur upp hvolpasvip Bjúving kom en sá engann, þannig að geriði það fyrir hann.Starir þegjandi út í loftið
Við eru með stáltaugar. Þolum svonalagað. Fattar nú hversvegna heyrist ekkert í Limbra
Ég held að það sé óskráð regla að það megi ekki birta myndir af raunheimaegóum Bagglýtinga. Reyndar var líka talað um það einhvern tíman í kringum árshátíðina að myndatökur væru bannaðar á samkomum Gestapóa, þó tel ég að allar myndir sem voru teknar í gær, hafi verið teknar með leyfi viðkomandi.
Þessar myndir eru einu heimildirnar um að þið hafið verið þar,því enginn virðist muna hvort hann var eða ekki var.?
Ég hef nú oft sagt þetta áður og segi það aftur:
Ég fæddist of seint.
Varpar öndum
Mér líður nú líka stundum þannig Furða mín. Djöfulli hefði mér til dæmis án efa þótt gaman að vera unglingur á 7. áratugnum - og þá ekki á Íslandi heldur einhvers staðar þar sem eitthvað var að gerast, til að mynda Amríku eða Guatemala.
Ég mætti með góðan Bagglýting með mér og getið nú.
Þarfi er ekki með. Hann veit of mikið.
Flúði staðinn undan slefandi fyllibyttum um miðnætti. ( Það voru ekki Gestapóar)
Jú Það var gaman að vera unglingur á þessum árum Þarfi.
Ég kom Til Amsterdam á hippaárunum og maður þurfti ekki að kveikja í jónu á Damsquare svo þykkur var kannabismökkurinn yfir torginu.
Mikið er ég heppinn að "verða" að vinna allar helgar og "þurfa" ekki sífellt að vera að drekka þetta alkaskol.
En eruð þið búin að sjá forsíðumyndina af Búbú tvíburabróður mínum? Við erum að vísu ekki samfeðra en hann er samt nálægt því að vera jafn flottur og ég.