Ég vissi ekki að Berserkur væri svona gamall.
Leynir á sér...
Þá bara telst hann ekki með Guðsverunum.
Voru guðirnir strútar?
Líklega og ætli þeir hafi ekki stungið höfðinu í hinn himneska sand eftir að þeir sköpuðu manninn.
Það gæti alveg verið!
Hefði sagan verið sögð á þennan hátt í upphafi myndu hinir trúuðu telja þetta satt því ekki er þetta neitt vitlausara en hin sagan sem þeir segjast trúa.
Við ættum ef til vill að sækja um einkarétt á þessarri hugmynd áður en lengra er haldið.
Ég vildi að þið gætuð komið ykkur að kjarna málsins, sem er þetta:
Gefur BEwing rummungs hægri handarkrók á kjaftinn fyrir að hafa kolvitlausa skoðun á einhverju
qEn ég hef ekki ennþá lagt fram neina skoðun! Brestur í óstöðvandi grát Ég hef bara botnað vísu og lagt fram spurningu!
Fyrirgefðu B. Ewing minn. Ég gleymdi mér í hita rökræðunnar.
Vinsamlegast settu fram sterka skoðun svo við getum slegist af viti.
Ber fram sterkt orðaða og ómálefnalega skoðun sem byggist á að jafnrétti ekki sé jafnrétti og eina jafnréttið sem til væri sé misrétti því að jafnrétti er jafnan beitt þannig að um misrétti sé að ræða. Þessvegna sé það óhjákvæmileg og ósveigjanleg niðurstaða að jafnrétti sé sjálfsblekking eiginhagsmunaseggja.Bætir við sósu og kartöflum sem meðlæti og dengir því framan í Hakuchi
Hvar er einkaleyfisskrifstofan hérna á lútinum?