— GESTAPÓ —
DV
» Gestapó   » Efst á baugi
     1, 2, 3, 4  
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
blóðugt 10/1/06 19:07

Sæl öll.

Þið hafið eflaust lesið félagsrit sem ég skrifaði í dag og ef þið eruð ekki að vinna á téðum sorapistli, þá hljótið þið að hafa samvisku til þess að lýsa andúð ykkar á þessum harmleik.

Ég hvet ykkur til þess að sniðganga þetta blað og jafnframt láta í ljósi fyrirlitningu ykkar, sem ég rétt vona að sé til staðar, hvernig sem þið sjáið ykkur fært.

Persónulega hef ég aldrei haft ánægju af fréttum DV og nú mun ég aldrei snerta þennan viðurstyggilega óþverra framar.

Hjarta skal mér Högna í hendi liggja blóðugt, ór brjósti skorit balldriða saxi slíðrbeitu syni þjóðans.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
albin 10/1/06 19:12

Akkúrat núna hefur mér ALDREI fundist Djé Vaff vera eins mikill sorapési.
‹Lýsir yfir algjörri andúð á sorapésanum ›

-------- Sérlegur launmorðingi Forstjóri Hlerunarstofnunar Tilræðisráðherra Snillingur Orginal
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Þarfagreinir 10/1/06 19:16

Ég er sammála. Ég ætla ekki að láta einn einasta eyri af hendi rakna í þágu svona ills málstaðar, og hvet aðra til að gera slíkt ekki heldur.

‹Hrækir á gólfið›

Greifinn af Þarfaþingi • Fullur símamálaráðherra • Yfiryfirheyrslumeistari Rannsóknarréttar Skoffínsins • Sjálfskipaður últraséntilmaður og öðlingur
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Wiglihi 10/1/06 19:26

Ég endurtek það sem ég sagði á félagsriti þínu áðan:

Tilvitnun:

Ég verð að segja það að mínu mati þar sem mann greyið sem um er að ræða hafi eins og Blóðugt kemst að orði verið myrtur. Hvort sem maðurinn hefði verið sakfelldur eður eigi þá á þetta ekki að eiga sér stað í fjölmiðlum fyrr en hann væri þá fundinn sekur fyrir dómstólum. Var ég mikið ánægður með forstjóra minn í dag að segja upp áskriftinni með það sama og vonast til að sem allra flestir geri það sama hið snarasta. Að mínu mati á að saksækja ábyrgðarmenn greinarinnar þar sem enginn vafi getur leikið á því að greinin hafi valdið þessu, því af áður séðum dæmum er DV hefur fólk fyrir rangri sök þá eru leiðréttingar í blaði þessu (ef þetta sorprit getur kallast slíkt) vægast sagt á þann veg að mannorð fólks sé endurlífgað.

‹Hrækir með Þarfa fast á gólfið›
Ég man ekki eftir neinu í fréttum í ómunatíð sem hefur reitt mig jafn hressillega til reiði og vakið hreinlega ógleði hjá mér.
‹Blótar herfilega og rífur hár sitt›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
blóðugt 10/1/06 20:16

Þetta vekur sannarlega ógleði. Það er ekki annað hægt en að velta því fyrir sér hvort ekkert sé heilagt lengur.

Hjarta skal mér Högna í hendi liggja blóðugt, ór brjósti skorit balldriða saxi slíðrbeitu syni þjóðans.
GESTUR
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hvæsi 10/1/06 21:04

DV er hérmeð komið á listann yfir óvini ríkisins.

‹Laumar stöfunum á plagg forseta›

Nú vantar algera múgæsingu, og samstöðu um að sniðganga þetta fyrirbæri.
Sendum þá í gjaldþrot, þannig þetta lið þurfi að fá sér vinnu og hætta þessum skrípaleik !

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skari 10/1/06 21:07

Eru þeir virkilega ekki ennþá komnir á listann?!

Við í RASSAT ættum að gera áhlaup á höfuðstöðvarnar! ‹Bíður eftir samþykki æðstu stjórnarmanna›

۞DREKABANINN۞ Háttvirtur yfirlífvörður hins háæruverðuga konungs
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Offari 10/1/06 21:08

Þegar ég las þitt félagsrit taldi ég þig vera lýsa andúð þinni á dauðarefsingum, og taldi ég að atburður þessi væri í einhverju vanþróuðu ríki, en ekki hér á Íslandi. Ég var orðlaus í svari mínu við félagsriti þínu vegna þess að ég vissi ekki um hvað málið fjallaði. Nú veit ég um hvað málið fjallar og ég er samt jafn orðlaus. Þetta umrædda sorprit hef ég hinsvegar ekki lesið í fjöldamörg ár þar sem ég fann enga þörf fyrir að næra mig á sorpi. Hér á landi er samt til fólk sem nærist á svona rusli því annars væri þessi pappír ekki til. Því eru þeir sem að kaupa þetta rusl líka að einhverju leiti samsekir því svona skrif koma ekki ef enginn vill lesa þau. Ég vona því að hér með séu þeir búnir að falla fyrir eiginn penna, og jafnvel að þeir sem eru ábyrgir verði lokaðir bak við lás og slá öðrum til aðvörunnar.

KauBfélagsstjórinn.
GESTUR
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hvæsi 10/1/06 21:12

Heyr heyr offari.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Furðuvera 10/1/06 21:21

Er ekki upplagt að fara í skrúðgöngu að húsnæði DV og kasta eggjum eða tómötum í það?

Tish ahh nay hush and fourpence, and an extra point for being so clevaaaaaah!
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
albin 10/1/06 21:24

Furðuvera mælti:

Er ekki upplagt að fara í skrúðgöngu að húsnæði DV og kasta eggjum eða tómötum í það?

Hefuru eitthvað á móti eggjum og tómötum? Hendum frekar moletovkokteilum.

-------- Sérlegur launmorðingi Forstjóri Hlerunarstofnunar Tilræðisráðherra Snillingur Orginal
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Offari 10/1/06 21:26

Það má kannski prófa logandi mýs.

KauBfélagsstjórinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
B. Ewing 10/1/06 21:32

Ég legg til að allir sem eiga ennþá afgangs flugelda fari í heimsókn inn á þennan snepil og haldi smá flugeldasýningu.

Siglingafræðingur Baggaflugs, teningaspilahúsasmíðameistari Baggalúts. •  • Stýrimaður Fjárfestinga og Margfeldisútvíkkunar Baggalútíska Heimsveldisins •  • Tryggingaráðherra Baggalútíu. Sendiherra S-Ameríku og Páskaeyju.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Offari 10/1/06 21:35

Gott væri að Vítisenglarnir færu nú í heimsókn.

KauBfélagsstjórinn.
GESTUR
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hvæsi 10/1/06 21:36

Svo við höfum þetta löglegt og leggjumst ekki á þeirra plan, þá væri sniðugast að fjölmenna við höfuðstöðvarnar og mótmæla þeim.. Kanski hafa með sér nokkrar skyrdollur

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
B. Ewing 10/1/06 21:38

Málningardollur væri nær lagi, þær endast lengur og meiri líkur á að skilja eftir bletti.

Siglingafræðingur Baggaflugs, teningaspilahúsasmíðameistari Baggalúts. •  • Stýrimaður Fjárfestinga og Margfeldisútvíkkunar Baggalútíska Heimsveldisins •  • Tryggingaráðherra Baggalútíu. Sendiherra S-Ameríku og Páskaeyju.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Offari 10/1/06 21:41

Fékk nú Lögguunginn samviskubit. Besta vopnið er að sniðganga svona sorp, aðgerðir þær er við göntumst hér með yrði okkur til skammar og því miður sorpinu til næringar.

KauBfélagsstjórinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Herbjörn Hafralóns 10/1/06 22:42

Ég kaupi aldrei þennan sorapappír, sem DV er.‹Blótar herfilega og rífur hár sitt›

LOKAÐ
     1, 2, 3, 4  
» Gestapó   » Efst á baugi   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: