Þetta er herfilega heimskulegt blað og ritstjórnin gapandi víðfeðmisvitleysingar íslenskri fréttamennsku til háðungar.
Ég var áskifandi af soraritinu í nokkra mánuði og sagði upp áskriftinni um mitt síðasta ár og hef ekki verslað það síðan.ég sá snepilin í dag hjá tengdó eftir að hafa séð fréttirnar og ákvað að lesa það aldrei aftur því ég vil ekki styðja svona sorp á einn eða annan hátt,Vona að sem flestir gefi skít í þennan sora
Ég hef nú ekki keypt DV hingað til og er sossum ekki á leiðinn í að gerast áskrifandi
en ef mannlegt eðli er samt við sig þá má búast við aukinni sölu í kjölfarið á þessu máli.
Ég hef reynt að fylgjast með Íslenskum fjölmiðlum undanfarna mánuði og finst þeir upp til hópa standa sig illa . Að byrta nafn og jafnvel mynd af einstaklingum sem ekki haf hlotið úrskurð dómstólanna er ekki bara svívirðilegt ganvart viðkomandi sem og fjölskildu þeirra, Það er jafnframt hætta á að fjölmiðlarnir hafi áhrif á útskurð málsins.
að byrta mynd og nafn af saksóttum og jafnvel dæmdum sem hafa játað er líka svívirðing ganvart börnum hans eða hennar og sakborningnum sjálfum. og mynnir á
þá tíma þegar almúganum var safnað saman til að vitna refsingar annara sér og sínum til varnaðar. það er ekki sæmandi nútímþjóðfélagi. vonand verður þettað hörmungar mál til þess að við öll hugsum okkur um áður enn við kaupum þessi andskotans blöð og étum hamborgaraanna meðan við lesum forsíðufréttina um eymdinna í Arnarnesinu og skeinum okkur yfir fréttunum um miljarða áramótaveislum þar sem Tom Jones syngur sexbomb fyrir holdsveika frá Sómalíu
Þetta er herfilega heimskulegt blað og ritstjórnin gapandi víðfeðmisvitleysingar íslenskri fréttamennsku til háðungar.
Kondi Kandý náði að lýsa þessu í einni skilmerkilegri setningu, heyr heyr.
Nú er Leibbi Djass reiður.
Ég viðurkenni það hér með að ég er áskrifandi að téðu sorpriti.
Á hverjum degi berst blaðið seint.
Á hverjum degi segi ég "djöfulsins blaðberar að geta ekki drullað sér út fyrir hádegi".
Á hverjum degi les ég blaðið.
Á hverjum degi segi ég "Hei, é veit hver þetta er!"
Svo mín vörn er þessi: ég nota þetta aðallega til a fylgjast með nágrönnum (klikkuðu mæðginin/hjónin og fleiri), gömlum vinum ("Dabbi Grensás" og fleiri) og ættingjum (náunginn sem var dæmdur fyrir amfetamínframleiðslu). Ef ekki væri fyrir DV hefðum við mæðgurnar líklega ekki fengið að vita af dómnum yfir bróðurræksninu mínu, þar sem úrelt-útskýring-á-fjölbreytileika-heimsins veit að ekki dettur honum í hug að láta okkur vita af svona smámunum.
Aftur á móti er ég alfarið á móti því að menn sakaðir um glæpi séu nafngreindir áður en þeir hafa verið dæmdir, eða jafnvel eftir það, sé um að ræða einhvern sem hægt er að tengja beint við fórnarlambið/lömbin. Sé aftur á móti um að ræða bláflibbaglæpon eða óskyldan/tengda aðila, finnst mér sjálfsagt að nafngreina viðkomandi, tala nú ekki um ef viðkomandi fékk vægan dóm (auðvitað eru undantekningar á þessu). Ég vil líka minna á að það er ekki að ástæðulausu að fjölmiðlar eru kallaðir 'fjórða valdið'.
Þeir misnota þá ábyrgð sem felst í því að vera fréttamenn. Þeir misnota hana á hverjum degi á ótal veigaminni vegu en þetta. Ef þeir væru aðeins að birta fréttir af dæmdum glæpamönnum en ekki draga fólk ofan í svaðið, í sumum tilfellum án þess að það hafi einu sinni verið kært, þá væri ef til vill hægt að halda áfram að blóta þessari æsifréttamennsku í hljóði. Svona svívirðingar eiga hinsvegar ekki að líðast.
Allir þeir sem hafa einhvern tímann sagt "no comment" við blaðamenn DV en hafa svo verið lögð orð í munn á prenti, ættu sérstaklega að sniðganga þennan djefuls sorasnepil. Almenn skynsemi.
Ég hef alldrei og mun alldrei kaupa þennan auma snepil, ég legg til að allir sem rekast á blaðið hjá vinum eða ættingjum segi þá til syndanna... þeir sem hafa yfir fyrirtækjum að ráða segi upp áskriftinni ef þeir eru með slíkt... það verður að stöðva þessa menn...
Förum að DV í hádeginu á morgun eða hinn, t.d. með rauð spjöld!
Drepum DV með því að kaupa það ALDREI og versla ekki við þá sem auglýsa í blaðinu.
Legg til að einhver taki saman lista yfir fyrirtæki sem auglýsa í Daglegum Viðbjóði og haldi uppfærðum á netinu. Maður getur þá prentað hann út og varast eiga viðskipti við þá sem halda þessum morðingjabissniss úti!
En þá þarf einhver að þola þá raun að fletta þessu drasli? Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Ætli sé hægt að bólustetja við þessu? Svona til þessa að geta lesið blaðið án þess að smitast af þessum viðbjóð.
Hæhó
Það er erfitt að vera alvöru polittikallí korrekt!
Ef það á að sniðganga DV þá þarf að sniðganga samsteypuna í heild - þessir menn höfða til sorans með DV en þeir fitna líka á öðru.
Eruð þið tilbúin að hætt að lesa/horfa/hlusta : Fréttablaðið, Sirkús, Birtu, Vísi.is, Sýn, Stöð 2, Sirkús, NFS, Bylgjuna, Fjölvarpið og allt þetta drasl þeirra?
Fyrir mig segi ég að ég er alveg tilbúin í það - en þið þurfið að átta ykkur á að það er ekki nóg að ráðast að einum anga krabbameinsins - það þarf að drepa það allt!
Förum að DV í hádeginu á morgun eða hinn, t.d. með rauð spjöld!
Ég las þetta vitlaust... Stóð aleinn fyrir utan DV með rautt spjald í dágóða stund áðan. Frekar vandræðalegt sko.
Ég er alveg til í svona mótmælagöngu....með rauðum, gulum eða bláum spjöldum. En það þarf einhver að skipuleggja hana og halda utan um hana svo að við lendum ekki öll í að standa ein fyrir utan höllinaq þeirra...
Hér er undirskriftasöfnun þar sem mælst er til þess að Dévaffarar hugsi sinn gang. Ég veit ekki hvað það stoðar að skrifa undir, en það sakar sannarlega ekki.
ER búin að skrifa undir - ráðlegg öðrum að gera slíkt hið sama.
Legg svo til að við afþökkum fréttablaðið og aðra þjónustu 365 - í það minnsta þar til búið er að stoppa DV-menn...
Hvernig væri að fara í alvöru með skilti og slíkt og mótmæla kröftuglega? Það er langt síðan ég hef tekið þátt í alvöru mótmælum. Á morgun eftir hádegismat kannski?