Gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Þakka samverustundirnar á linu ári.
Hittumst heil og kannski hálf á nýju ári.
Kær kveðja:
Hildisþorsti
Gleðileg jól kallinn minn.
Ég sendi sömuleiðis öllum á Baggalúti mínar bestu jólaóskir og þakka samveruna á árinu, sem er að líða.
Gleðileg jól elskurnar mínar.
Ég vona að þið hafið það öll sem best yfir hátíðarnar og eyðið tímanum í félagsskap þeirra sem þið elskið.
Munið að vera góð við hvert annað og að hafa einhvern sem þið elskið og elskar ykkur á móti (veri það fjölskylda eða vinir) er ómetanlegt á þessum árstíma.
Knús og kossar.
Gleðileg jól og velfarnarkveðjur frá Kanada, vona að þið eigið það sem best um jólin, öllsömul.
sphinxx óskar öllum gleðilegra jóla og vonar að aðrir hafi ekki hlotið þau grimmilegu örlög líkt og hann að þurfa vinna blessuðu jóla helgina sveinei!!!!
heim um miðnætti að opna pakka og elda mat..
grimmd heimsins og yfirmanna kemur enn á ný á óvart....
Ah, Nornin er í sömu stöðu og þú Sphinxx. Þetta er bölvanleg staða sem maður verður að gera það besta úr.
Nornin. fékk jólamatinn áðan bjóst við bakka en vegna vonandi niðurskurðar hjá harðstjórunum, varð ég að sætta mig við pappa disk með bragðlausu roastbeef og öðru gúmílaði sem líklegast hefur verið geymt frá því bruninn í hringrás var.
er sáttur því þeir hefðu getað látið mig hafa lásboga og sent mig á rottuveiðar í einhverjum kjallaranum því alvöru karlmenn veiða víst sinn eigin mat..
Þá er mesta kikkið farið, maturinn búinn og pakkarnir opnaðir. Ég er hæstánægð, enda komin úr sparifötunum og í flónelsbuxur sem eru alltof mörgum númerum of stórar. Vonandi eru/voru jólin ykkar jafn yndisleg!
Baara svona venjuleg. Ég vil óska ykkur öllum gleðilegrar hátíðar, hvort sem þið fremjið mannfórnir (Jóakim í S-Ameríku), blótið goðin (Nornin m.a.) eða eruð í þessu fyrir gjafirnar (þorri gestaspóa).
Gleðilega Leibbajól allir....
slær höndum saman og flautar lagstúf.
Hananú, rétt að kveikja á grillinu svo maður geti grillað jólasteikina.
Gleðileg jól öll sömul. Nú tekur við jóladagur sem er alltaf tekinn með trompi í minni fjölskyldu. Byrjar að hlakka til
Gleðilega miðsvetrarhátið öllsömul
Hafið það gött um jölið.
Hafið það gött um jölið.
Ég var nú hér hnubbaður fyrir að skrifa h í líkhaminn.
Það er reyndar að mínu mati ekki vitlaust.
En má ég spurja um austfirskuna að skrifa ö í staðin fyrir u.
Ég svaraði eitt sinn í síma. Hinumeginn var sagt:
Góðan daginn! Ég heiti Önnar.
Ég sagði: Heitirðu Önnar?
Nei. Sagði hann ég heiti: Önnar
Ef að er gáð þá er u hljóðið sem við íslendingar þekkjum ekki til nema fyrir vestan austfirði þó að það sé kynnt í enskubókum sem hljóðið sem heyrist þegar sagt er under eða: undir. Það heyrist þó ekki hjá þeim (eingil saxnesku). En það er betra að skilja það að útlendingar geti ekki greint á milli hljóðana ö aða u þegar maður veltir þessum hljóðum á milli varanna..
Og til að vera viss.
Getur einhver hér á Gestapó bent á að hljóðið u (Ekki ö)sé notað í einhverju tungumáli öðru en íslensku.