Skrattanz!
Tölvuklukkan mín er aðeins of fljót deyr úr skömm en verður að lifna við til að halda áfram að vinna
Ég gleymdi að taka þátt, er of seint að gera það núna?
Nei, ég held að það hafi verið mistök að gefa svona lítinn tíma. Gjörningurinn telst enn vel heppnaður ef menn senda inn fyrir 12:43.
Þá eru liðnar tíu mínútur. Þetta gekk nú bara ágætlega. Ég vil þakka alteralteregóunum sem mættu kærlega fyrir þeirra framlag.
Eflaust hefðu enn fleiri mætt ef tíminn hefði verið nokkrir klukkutímar. Það er nefnilega mjög erfitt fyrir Glúm að senda inn hátt í 2000 innlegg á örfáum mínútum.
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Eflaust hefðu enn fleiri mætt ef tíminn hefði verið nokkrir klukkutímar. Það er nefnilega mjög erfitt fyrir Glúm að senda inn hátt í 2000 innlegg á örfáum mínútum.
Rétt er það. Hann komst rétt svo í að senda inn tíu innlegg á þessum tíu mínútum.
Missti maður af einhverju... Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Rosalega er é... Glúmur ruglaður að tala svona við sjálfan sig!Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Blótar óstjórnlega og rífur hár sitt þegjandi út í loftið
Ég er ánægður með þetta framtak. Glæsileg nýting á tíma og lífi.
Já, eins praktískur og gjörningar verða, held ég bara.
Jæja hvaða dag er þetta aftur? Mér er svooo farið að hlakka til.
Tekur fram stuðtæki og þeytist í átt að albin
Frá! Frá! Bráðatilfelli!
Er þá möguleiki að maður geti rekist á sjálfan sig hér?
Fer það ekki eftir því hve margklofin persónuleiki þú ert?
Hef öruggar heimildir fyrir því að sumir séu svo fjölklofnir að þeir geti hvergi þverfótað fyrir sjálfum sér.