Ég hef skoðað svolítið þetta svæði og skilst að það sé til siðs að kynna sig.
Komið þið sæl. Ég heiti Amelia.
Komdu sæl Amelía. Fyrstu orð þín hér benda til þess að þú sét betur máli farin en sumir nýliða. Vertu velkomin og hafðu það sem best hér
plottar mikla hrekkjasyrpu
Þakka þér fyrir viðtökurnar. Ég hef þó eilitlar áhyggjur af þessum hrekkjum.
Af hverju hefurðu áhyggjur af því? Glottir eins og fífl
Hér eru engin hrekkjusvín.
Velkomin Amelía, ert þú nokkuð skyld þessari sem pompaði í Kyrrahafið hér um árið?
Eða gengilbeinunni frönsku?
Vertu annars hjartanlega velkomin.
Takk fyrir viðtökurnar.
Og nei, ég er ekki skyld þessum dömum sem þið nefnið, að minnsta kosti ekki svo ég viti til. Þó er aldrei að vita nema í mér renni ofurlítið franskt blóð. Ég hef þó meiri trú á að það sé ítalskt.
Velkomin Amelia og megir þú ekki fara allt of illa út úr hrekkjum Ívars.
Glottir eins og fífl
velkomin Amelia.Megirðu hafa margar gleðistundir á Baggalút
Ha ég? Mínir? Starir þegjandi út í loftið
Ég hafði lesið það einhvers staðar að eftir 10 innlegg mætti maður velja sér mynd. Þegar ég ætlaði að velja þá voru þetta alltsaman ljótir karlar og ég vil ekki vera karl!
Hvað er til ráða? Var ekki hægt að senda óskamynd til einhvers?
enter@baggalutur.is eða senda honum einkapóst hér inni á svæðinu með mynd sem þig langar að nota.
Höfum þetta stutt og laggott; Hæ.
Komdu sæl Amelia, hrædd við hrekki?
Hlær nornahlátri og stekkur á Ameliu og sleikir á henni eyrun
Velkomin Amelía. Alltaf gaman að taka á móti nýliðum, sem kunna stafsetningu.