Já þah var skjemtun af þessuh... En eithvah var jólahlaborðið þarna þannig að maður komst ekgjih...æi maður fór ekki en var eikvah á leiðinna allt kvöldið, hvað er klukkanh?
var að lesa þetta í fréttablaðinu stóð að húsið ætlaði að rifna þegar Júlíus kom inn.
Það "ætlaði" ekkert að rifna af, það hafði ekkert val og flaug af byggingunni.
Aldeilis vel heppnaðir tónleikar. Allir fóru á kostum.
Það var óvenjumikið af miðaldra fólki þarna, dansandi af sér afturendann. Svo virðist sem Baggalútssveitin sé að höfða til miðaldra sveiflukynslóðarinnar, sem Geirmundur Valtýsson hefur drottnað yfir áratugum saman. Ef þeir ná ekki nema brot af því fólki þá hafa þeir tryggt sínar ævitekjur það sem eftir er.
Hvernig væri að fá Geirmund til að battla við Baggalút og sjá Geirmund ganga sneyptan frá og helga sig Kaupfélagsvinnunni... Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Maður er nú bara með einkatónleika í stofunni. Whiskey og viðeigandi rugl!