Umræðan um staðsetningu Reykjavíkurflugvallar er farin að taka nýja stefnu. Svo virðist sem að ógerlegt sé að færa flugvöllinn, þar sem landsbyggðarmenn þurfa nauðsynlega að hafa völlinn í Vatnsmýrinni. Offari á nú bágt með að trúa þessum rökum, þó er hann nú sjálfur landsbyggðarmaður, og er samt nákvæmlega sama hvort Reykjavíkurflugvöllurinn sé staddur í Reykjavík eða Ísafirði.
Í kastljósinu var þessi umræða tekin fyrir, mér kom það mikið á óvart hve margir landsbyggðarmenn lentu á þessum velli. 360þúsund landsbyggðar menn! nú var ég hissa taldi að við værum ekki svo margir. Er ekki einfaldara að færa Reykjavík út á land heldur en að færa flugvöllinn? Á ekki Reykjavík að vera þar sem meirihluti þjóðarinnar er? þá er bara spurning hvar er best að geyma Reykjavík?
Ég er of æstur til að ræða þetta.
Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfiðÞetta átti bara að vera grín
Ég er of æstur til að ræða þetta frekar, viltu ekki koma að yrkja?
Sækir pennann frá kosningaskrifstofu Alþýðubandalagsins 1984 og byrjar að rita..
Hvernig má það vera að þessi völlur er ekki löngu búinn að stækka og verða að stórborgarflugvelli á við Híþróv, Tjarls DeGaul og Djei-eff-kei ? Mér er spurn hversvegna ekki er fyrir löngu búið að senda liðið af þessu útnesi og inn í dásamlegan og brakandi fínan Hvalfjörðinn. Þaðan er fjallasýnnin fegurri er orð fá lýst, skíðasvæðin verða dásamlega nálæg þegar lyfturnar verða settar upp í Botnssúlum og við fáum loksins skjól fyrir þessari slagveðurssuðvestanátt sem ætlar alla lifandi að drepa! Nú er lag til að bæta hér fyrir þessi hörmulegu mistök sek hafa viðgengist um aldirnar og .. ... ..... Blekið klárastStrunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Mér líst vel á að láta flytja Reykjavík, og helst í minn átt. Mikið væri hentugt að geta bara skroppið niður í bœ.
fær nostalgíukast
Það líst oss afar vel á Ljómar upp. Miðað við að hvorki meira nje minna en 360 þúsund manns fara árlega um Reykjavíkurflugvöll er afar lítið mál að flytja þessar örfáu (rúmlega 100 þúsund) hræður lítillega í vesturátt. Þá losnar líka gífurlegt pláss þannig að hægt verður að flytja Keflavíkurflugvöll til Reykjavíkur svo flutningarnir gangi enn hraðar.
PS Man einhver hvað eitt stykki stjörnusambandsstöð tekur mikið pláss ?
PS Man einhver hvað eitt stykki stjörnusambandsstöð tekur mikið pláss ?
Með eða án þjöppunar? og í hvaða lit? Kóbaltbláu?
Ein álma með þjöppun og önnur án þjöppunar. Sem mest af henni á að vera kóbaltblátt.
Sko. Ef við færum vesturbæinn uppí grafarvog, og grafarvoginn bara til færeyja, þá er hægt að troða árans skerjafirðinum útá seltjarnarnes.
101 rvk fær að standa, og flugvöllurinn settur á sama stað, og teygður útí vesturbæ, þá er hægt að fela fína verksmiðju í skerjafirðinum, á bakvið flugvöllin, og engin leið að komast þangað nema í gegnum leynigöng er verður gætt af Don de vito og hans mönnum.Ljómar upp
Hey, Grafarvogurinn fer ekki til Færeyja. Punktur. Viljirðu rökræða það eitthvað frekar, er þér velkomið að gera það, við atgeirinn.
101 verður að fara. Þar þarf að vera pláss fyrir bæði alþjóðaflugvöll svo og kóbalt- og plútóníumnámur því vjer höfum ákveðið að reisa stjörnusambandsstöð á, í eða við Öskjuhlíð. Óvíst er að hún komist fyrir á eða í Öskjuhlíð og vorum vjer þess vegna að velta fyrir oss því plássi er eðlilegt er að stjörnusambandsstöð taki.
Jæja þá gamli fílupúki.
Grafarvogurinn í breiðholtið, og breiðholtið til færeyja.
Held að ef við klippum á hringbrautina, höldum byggð austan hennar og fjarlægjum restina, alveg útá nes, sem og skerjafjörð, þá ætti að vera pláss fyrir alþjóðaflugvöll, sem og stjörnustöð og kóbaltverksmiðju, allt af stærstu gerð. á þessu svæði.
Jafnvel er hægt að hirða vesturbæ kópavogs ef þörf er á.
101 verður að vera, V/málefnalegra rökræðna á laugaveginum, sem og allra öldurhúsanna.
Við látum nú ekki klippa á áfengi raunheima, það slævir íbúa þar og auðveldar okkur að ná fullum yfirráðum þar.
Væri ekki ráð að færa Vatnsmýrina?
Væri Reykjavík ekki skemmtilega staðsett í Trékyllisvík? Öllum húsunum raðað þarna meðfram ströndinni. Bara risavaxin sjávarborg með eina aðalgötu. Engin mislæg gatnamót, engin göng. Bara einn breiður vegur.
Er ekki best að hafa Reykjavík á Srengisandi. Þar er vítt til veggja fagurt og stutt í alla helstu þéttbýliskjarna þá væri hægt að leggja niður innanlandsflugið.