Hey, Grafarvogurinn fer ekki til Færeyja. Punktur. Viljirðu rökræða það eitthvað frekar, er þér velkomið að gera það, við atgeirinn.
Tekur sér stöðu við hlið Hlíðarendakappans og setur sig í hnefaleikastellingar
[quote="hvæsidillumeistarinn"]Jæja þá gamli fílupúki.
Grafarvogurinn í breiðholtið, og breiðholtið til færeyja.
quote]
Gerið svo vel að láta breiðholtið í friðiBlótar herfilega og rífur hár sittStrunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Það verður skítt fyrir fína einkaþotuliðið að flytja völlinn úr miðbænum.
Hey, Grafarvogurinn fer ekki til Færeyja. Punktur. Viljirðu rökræða það eitthvað frekar, er þér velkomið að gera það, við atgeirinn.
Tekur sér stöðu við hlið Hlíðarendakappans og setur sig í hnefaleikastellingar
Þetta er alveg rétt hjá ykkur. Vissulega eru Færeyingarnir slæmir, en svo slæmir eru þeir nú ekki, að eiga Grafarvoginn af öllum stöðum skilinn!
Víkur sér fimlega undan atgeirnum og hnefunum, brosandi út að eyrum og lyftandi báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta sérlega skondið[/s]

hlær ósjálfrátt þremur atkvæðum en setur svo upp reiðisvip
Æ viltu ekki fá þér hárkollu þarna þjóðve$#&*%$*...Blótar herfilega og rífur hár sitt
101 verður að fara. Þar þarf að vera pláss fyrir bæði alþjóðaflugvöll svo og kóbalt- og plútóníumnámur því vjer höfum ákveðið að reisa stjörnusambandsstöð á, í eða við Öskjuhlíð. Óvíst er að hún komist fyrir á eða í Öskjuhlíð og vorum vjer þess vegna að velta fyrir oss því plássi er eðlilegt er að stjörnusambandsstöð taki.
Ég myndi halda að Öskjuhlíðin, Suðurhlíðarnar allar og Vatnsmýrin ásamt veglegri landfyllingu yfir voginn myndu duga í fyrsta áfanga nýrrar stjörnusambandsstöðvar. En mjög flótlega þyrfti að rýma þingholtin, Skuggahvefið eða allt frá svokallaðri Braut Snorra til sjávar í norðri og í það minnsta að bæjarlæknum (nú Gata Lækjar) jafn vel hvosina fyrir annan áfanga. Fyrir þriðja áfanga gæti sloppið en með dágóðri landfyllingu að taka svæðið til vesturs áfram að Gróttu.
Þetta skilst mér þó að sé eingöngu nægilegt fyrir minni gerðina, og hún fæst ekki með leðri. Það er þó hægt að sérpanta hana í Kóbaltbláu.
Mætir með 1000tonna jarðýtu og hefst handa við að slétta miððbæinn.
Ertu til í að sleppa því að fletja út Tryggvagötuna svo ég geti farið heim til mín á eftir?
Best er að láta jafnt yfir alla ganga og flytja alla Reykjavík ásamt nágrannasveitarfjelögunum örlítið í vesturátt, jafnt íbúa sem mannvirki. Það kom nefnilega eigi fram er fyrst var minnst á þennan flutning nákvæmlega við hvað var átt. Þess vegna er auðveldast að flytja einfaldlega allt því þá er öruggt að það verður flutt er flytja átti skv. upphaflegu hugmyndinni (eitthvað annað slæðist kannski með líka).
Þá er líka öruggt að pláss verður fyrir alþjóðaflugvöll, stjörnusambandsstöð og kóbalt- og plútóníumnámur. Einnig verður nóg pláss fyrir hugsanlega skotpalla fyrir geimskip og flugskeyti í framtíðinni og aldrei þarf að hafa áhyggjur af að flytja þurfi umrædda starfsemi vegna nálægðar við byggð (eða það sem er líklegra: Að flytja muni þurfa byggð vegna nálægðar við umrædda starfsemi).
Hey, Grafarvogurinn fer ekki til Færeyja. Punktur. Viljirðu rökræða það eitthvað frekar, er þér velkomið að gera það, við atgeirinn.
Tekur sér stöðu við hlið Hlíðarendakappans og setur sig í hnefaleikastellingar
Þetta er alveg rétt hjá ykkur. Vissulega eru Færeyingarnir slæmir, en svo slæmir eru þeir nú ekki, að eiga Grafarvoginn af öllum stöðum skilinn!
Víkur sér fimlega undan atgeirnum og hnefunum, brosandi út að eyrum og lyftandi báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta sérlega skondið[/s]
hlær ósjálfrátt þremur atkvæðum en setur svo upp reiðisvip
Æ viltu ekki fá þér hárkollu þarna þjóðve$#&*%$*...Blótar herfilega og rífur hár sitt
En ég er með hárkollu?
Starir þegjandi út í loftið, beygir sig svo aftur undan atgeirslagi
áttar sig loks á að hann var að horfa á knattleikstuðru en ekki Hr.Zimmermann hér fyrr í dag
Getur einhver bent mér á Nasa.
Það má ekki ryðja þar straks!
Líkast til hjer: http://www.nasa.gov
Fyrirbæri þetta verður eigi rutt strax því þarna er ýmislegt áhugavert er fyrst þarf að gera upptækt, sjerstaklega ef ætlunin er að hafa aðstöðu fyrir geimskip, gjöreyðingarvopn o.fl. á höfuðborgarsvæðinu.
áttar sig loks á að hann var að horfa á knattleikstuðru en ekki Hr.Zimmermann hér fyrr í dag
Það er ekki laust við að ég móðgist ögn?
Snöktir lágt
snýr sér að næsta hlut á hreyfingu
Fyrirgefðu en ég held bara að sjónin sé eitthvað að gefa undan.
Sko, málið er eifaldlega svona: Grafarvogi verður skellt ofan á Breiðholt í Heiðmörk, Fossvogurinn flyst í Salahverfi í Kópavogi, Kópavogur verður sendur til Eystri-Útópíu því einhver sagði að það væri svo gott að búa í Kópavogi. Seltjarnarnes verður sent á Nesjavelli, vesturbær (107 og 101) verður sendur á Kárahnjúka til að lífga upp á menningarlífið þar, Svæðið frá Hlemmi og upp að Kringlumýrarbraut verður skorið í parta og fara hlíðarnar ofan á Grafarvog sem fyrir var ofan á Breiðholti uppi í Heiðmörk. Garðabæ verður sáldrað út um allt og Hafnarfjörður verður færður í Mosfellsbæinn. Mosfellsbær verður hins vegar lagður í eyði og afgöngunum af honum komið fyrir í húsi við Bergþórugötuna. Álftanesinu verður komið fyrir með Seltjarnarnesi á Nesjavöllum. Með þessum lítillegur tilfæringum verður hægt að koma upp myndarlegum alþjóðaflugvelli, kóbalt-, plútóníum og ákavítisnámum ásamt 72 holu golfvelli á þessu svæði. Enda er það heldri manna sport að spila golf. Vlad, eigum við að taka hring? iðar í skinninu að spila golf við Vlad
Hey, Grafarvogurinn fer ekki til Færeyja. Punktur. Viljirðu rökræða það eitthvað frekar, er þér velkomið að gera það, við atgeirinn.
Andvarpar
Grafarvogurinn er skítapleis og þar búa ekkert nema smáborgaraleg úthverfabörn, foreldrar þeirra, sem öll horfa á Ísland í bítið og hlusta á Bylgjuna á leið í vinnuna á station-vögnunum sínum, og hjarðhugsunin þeirra:
Póstmódernísk eyðimörk þar sem ekkert þrýfst nema hnakkamellur, viðskiptafræðingar og bílasalar.