Skammast mín fyrir að hafa drukkið 2 hvítvínsflöskur í kvöld!!! og þurfa að ýta á backspace svona 10 sinnum til að geta skrifað þessar línur...
ég ætti að vera að gera við bílinn svo ég komist sómasamlega í vinnuna á morgun
Ég ætti svo mikið að vera uppi í rúmi undir sæng með Klínex kassa og nefsprey, helst sofandi yfir vondu sjónvarpsefni eða grátandi yfir því að þessi veikindi klúðri prófunum mínum en hér er ég...
Vera góður.
Skammast mín fyrir að hafa drukkið 2 hvítvínsflöskur í kvöld!!! og þurfa að ýta á backspace svona 10 sinnum til að geta skrifað þessar línur...
Ha? Ég geri það þegar ég er edrú...
Ég ætti að fara að stimpla mig út (frá vinnunni) og koma mér heim.
Ég ætti að vera uppi í rúmi að sofa úr mér veikindin
Ég ætti að vera að drekka ís kaldan Guinness akkúrat núna í tilefni þess að The Dubliner er 10 ára... en viti menn... hér er ég.
Maður á ekki að drekka Guinness ískaldann. Hann framreiðist við stofuhita. Þá er hann bestur Ljómar upp
Ég ætti að vera hér, nákvæmlega þar sem ég er.
Á Englandi bjóða þér ekki bara uppá kaldann Guinness, heldur "Extra Cold" Guinness, það er ljúfur mjöður.
Annars ætti ég að vera að gera það sem ég er að gera svo ég skila auðu.
Enda eru Englendingar klikk.
Ég ætti að vera að vinna. En ég nenni því ekki þar sem þetta er síðasti dagurinn hér.
Hann kemur alltaf á nokkura vikna fresti.
En ég ætti eiginlega að vera að undirbúa ferð til djöflaeyjunnar, Vestmanneyja.
Ég bara hreinlega nenni því ekki.
Setur fæturnar uppá skrifborðið, hallar sér aftur og lætur braka í bakinu.
Nah... ekki heimsendir (hann er 12. júlí 2012). Skólinn er að byrja aftur eftir helgi og þetta er síðasti vinnudagurinn.
Enn og aftur ætti ég að vera sofandi, en þó er laugardagskvöld...
Ég ætti að vera komin á lappir og farin að fá mér eitthvað í svangin.
Ég ætti að vera mála holið í nýja húsinu mínu er allveg að fara byrja
Ég ætti kanski að vera að hjálpa offara, en ég veit ekki hvar hann býr.
Hallar sér aftur og setur lappirnar uppá borð