Hér geta menn óskað meistaranum til hamingju með afmælið í dag.
TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ!
Til hamingju með afmælið, Timbri.
TIL HAMINGJU!
Ætlar karlinn ekkert að ná sér í yngri konu? Er ekki einhver af dætrum hans komin á kjöraldur?
Á kallinn afmæli á fullveldisdaginn? Þetta vissi ég ekki. Stórmerkilegt. Einhvers staðar í hausnum á mér voru reyndar upplýsingar þess efnis að hann væri orðinn frekar gamall, en ég spáði víst aldrei mikið í hversu gamall hann er í raun. Hann á sér að baki mjög skemmtilegan feril sem taugaveiklaður sprellikall.
En nú er nóg röflað. Ég óska herra Allen til hamingju með afmælið og allar myndirnar.
xT
Á mínum heimaslóðum þótti við hæfi að íslenska nöfn á borð við hans nafn og var hann ætíð kallaður Viðar Alfreðsson
Woody er með woody smá
willy fyrir Lily
Mia galla á goody sá
God, hvað þetta er silly.
.
Já Woody elsku karlinn, til hamingju. Skilaðu kveðju til konu/dóttur þinnar.
Það er alveg við hæfi að óska þessum meistara til hamingu.
Til hamingju woody! xT
Ég hef óttast þennan dag lengi. Nú er hann orðinn gamalmenni. Mig hryllir við tilhugsunina um heim án Woodys.
Til hamingju engu að síður Viðar minn.
Tilhugsunin um Allenlausan heim gleður oss sannarlega ekki Fyllist kvíða og íhugar að hringja líka í sálfræðing en minnist þess svo að í myndum Woodys Allens eru þeirra vandamál oft miklu stærri en vandamál sjúklinga þeirra.
Fyndnasta mynd sem vjer sáum í æsku (líklega u.þ.b. 10 ára) var Take the Money and Run Veltir fyrir sjer hvort það sje undarlegur kvikmyndasmekkur hjá 10 ára barni en kemst að því að það sje aukaatriði. Gerði myndin sú oss að Woody Allen aðdáanda fyrir lífstíð og er hann því fyrsti uppáhaldsleikstjóri vor. Þess ber að geta að sl. ár komumst vjer að því að eftir öll þessi ár finnst oss hún ennþá nánast ólýsanlega fyndin.
Óskum vjer Woody Allen hjer með formlega til hamingju með daginn (þó hæpið verði að teljast að hann sjái kveðju þessa).
verður kvíðin og hringir í sálfrœðing í tilefni dagsins
En það gleður oss hins vegar mjög að sjá yður loks bregða hjer fyrir Ljómar upp þrátt fyrir fyrri tilhugsun um Allenlausan heim.
Ég er greinilega í fámennum hópi er hrífst ekki af Viðari Alfreðs.
Voðalega er ég spes. Engu að síður þá má alveg óska manninum til lukku með daginn. Starir þegjandi út í loftið
Nöhötsjh! Erum við Woody jafnaldrar?
Jessss!!!!!!!!!!!
Er hann þá nú þegar kominn yfir áttrætt ? Fær enn á ný áhyggjukast vegna tímavjelarinnar og veltir fyrir sjer hvaða ár sje eiginlega
Ég er greinilega í fámennum hópi er hrífst ekki af Viðari Alfreðs.
Voðalega er ég spes. Engu að síður þá má alveg óska manninum til lukku með daginn. Starir þegjandi út í loftið
Já, ég gleymdi að óska honum til hamingju með daginn en ég er eins og Rasspabbi, alls ekkert hrifinn af honum!
Mér þykir ekkert varið í myndir eftir Woody og sendi honum því engar hamingjujóskir.
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Væri ekki nær að óska dóttur hans ég meina konu hans til hamingj með að það sé bráðum farið að styttast í þettað