Nú veit ég ekki, ég horfði á mitt eintak í litlu sjávarþorpi útá landi og var ekki með sýningar bíóhúsa í reykjavík á hreinu.
En ég myndi pottþétt mæta á svona sýningu.
Þekkir einhver hér bíógreifa
Sendir út fyrirspurn til Gestapóa
Það væri óskandi að einhver hér hefði slík áhrif. Jafnvel væri hægt að virkja Nexusnörda til að þrýsta á lokaða sýningu á þessu meistaraverki, þeir hafa staðið fyrir sérstökum forsýningum á hinu og þessu, hljóta að geta nördast til að sýna þetta listaverk.
Slettir Okey, Þekkir einhver Nexusnörd ?Klórar sér í höfðinu
Spurning um að einhver mjög vel ritandi hér bjóði sig fram í að rita tölvupóst á eitt eða tvö bíóhús og manna kálið ?
Hmmm..Þetta mætti skoða..!..
Slettir Okey, Þekkir einhver Nexusnörd ?Klórar sér í höfðinu
Ég ætla að leyfa mér að áætla að það séu minnst 10 Nexusnörd sem eru tíðir gestir á Gestapó.
-
Hakuchi hermdi eftir stökkinu góða hér áðan... en ég hef afrekað að handarbrjóta mann með því. Ég varð líka vitni að því nokkrum árum áður þegar bekkjarbróðir minn handarbraut annan bekkjarbróður okkar með sparkinu góða.

Var það framkvæmt á réttan hátt?
Þ.e. standa, sparka og lenda á sama fæti...
Að sjálfsögðu ekki, þetta var bara eftirherma og léleg í þokkabót.
Iss...
Lítið varið í svona eftirlíkingar.
En maður lifandi... þetta virkaði, tvö handarbrot sem ég veit um.
Auðvitað virkaði sparkið þó faglega hliðin væri minni.
Enginn véfengir mátt sparksins. Lifi Karate Kid myndirnar.
En hvað segiði, þekkir enginn bíógreifa?
Nei... en ég á ágætis örbylgjuofn...
Er það ?
Með Sjónvarpi kanski ?
Ég á svaka fínt borð sem er fyrir framan salernisskálina og auðveldar lestur dagblaðanna til muna.
Ég á sæmilegasta sjónvarp... en ég þyrfti að fá mér svona borð... og reyndar baðherbergi þar sem svona borð kæmist fyrir...
Auðvitað virkaði sparkið þó faglega hliðin væri minni.
Enginn véfengir mátt sparksins. Lifi Karate Kid myndirnar.
En hvað segiði, þekkir enginn bíógreifa?
.
Júmm..flesta þeirra..!..
Setur upp smeðjubros, labbar að Riddaranum og laumar til hans Hennesey flösku
Og búinn að viðra þessa hugmynd við einhvern þeirra ?
Að sjálfsögðu ekki, þetta var bara eftirherma og léleg í þokkabót.
Hendurnar hefðu líka fokið af handleggjunum ef spörkin hefðu verið rétt framkvæmd.
-