Hmm prufaðu þetta á Furðu fyrst. Ha? Er það ekki góð hugmynd?
Hmm prufaðu þetta á Furðu fyrst. Ha? Er það ekki góð hugmynd?
Pokinn er rétt nógu stóru til að rúma lítið laufblað, ég er nokkuð viss um að hún kemst ekki í hann. Auk þess, af hverju ætti ég að vilja að skjóta henni í burtu, og hvað þá til Limbra?
Tjah, maður veit ekki. Hún getur nú verið óttalegt óargadýr sú litla, en það er rétt að Limbri á ekkert skilið að lenda í því. Troddu mér bara í þennan poka. Prufum þetta !
Óargardýr...! Urrar
Einnig má prófa að gera þetta með kjarnorkuflugskeyti ef þjer sættið yður við að leggja áfangastaðinn í rúst.
Tjah, maður veit ekki. Hún getur nú verið óttalegt óargadýr sú litla, en það er rétt að Limbri á ekkert skilið að lenda í því. Troddu mér bara í þennan poka. Prufum þetta !
Hvað er þetta, hún er ljúf sem lamb, oftast nær.
Jæja, prófum þetta. Tekur Litla Laufblaðið varlega upp og setur það í högghelda pokann.
Bindu pokann við ör og skýtur henni í átt til Limbra, hvar sem það er nákvæmlega
Jæja, það verður gaman að sjá hvort þetta virkar.
Öskrar á eftir pokanum:
Bið að heilsa Liiiiiiiimbraaaa!
Fylgist spennt með
Bítur Gunnar í eyrað
Áii, hvað átti þetta að þýða? Nuddar eyrað lauslega og horfir á eftir örinni
Baaaaaaara að leika mér.
Vökvar blóm
Jæja, allt í lagi þá.
Sér örinni hverfa út í buskann og bíður spenntur eftir að fá skilaboð um hvort tilraunin hafi heppnast eður ei.
Bíður
Bíður aðeins meira
Nei, nú nenni ég þessu ekki lengur.
Fer að aðstoða Furðu við að vökva blóm
Ohh litla krúttið þitt!
Knúsar og kyssir Gunnar
Slær aulann á nefið
Skamm! Farðu og hömpaðu Don!
Svona svona, ekki æsa þig svona mikið. Faðmar Furðu innilega til að róa hana og kyssir Hún er bara afbrýðisöm út í okkur og vill reyna að stýja okkur í sundur.
Horfir á Hakuchi og hristir hausinn
Svona svona, ekki æsa þig svona mikið. Faðmar Furðu innilega til að róa hana og kyssir Hún er bara afbrýðisöm út í okkur og vill reyna að stýja okkur í sundur.
Stýja ykkur í sundur? Ég er bara mjög kærleiksrík manneskja. Enda á Don hjartað mitt.
Hnerrar hressilega
Afsakið mig, ég er sko með hormóna ofnæmi. Það er eitthvað mikið af þeim í loftinu núna.
Hnerrar aftur, snýtir sér.