Háæruverðuga Ritstjórn, ágætu heiðursgestir, sagnaþulir og aðrir gestir.
Ég man þá tíð, áður en Margrét Þórhildur lærði að reykja og áður en forsetinn okkar fór í leikhúsið var til heimasíða. Þessi heimasíða hét Baggalútur. Þar uppi Gestapó(k) þar sem hver sem var gat án formlegrar skráningar lagt orð í belg undir hvaða nafni sem var. Þar setti ég inn skilaboð einstaka sinnum, en hætti svo. Síðan hef ég fylgst með hér alltaf annað slagið en hingað til ekki tekið þátt í umræðunum. Því skal nú breytt.
Nú verð ég að hætta þessu orðagljáfri, því ekki vil ég hefja feril minn sem virkur félagi á mánudegi.
Ég vona að hér verði tekið vel á móti mér.
Þakka gott hljóð,
Günther Zimmermann.
xT
Þar setti ég inn skilaboð einstaka sinnum, en hætti svo.
Ahh, snjall þessi. Hann ætlar að komast fram hjá busun með bellibrögðum...
En vertu annars hjartanlega velkominn. xT
Má bjóða þér engil?
Vertu annars velkominn. Ég treysti því að þú kunnir mannasiði og notir þá. Við erum voða indæl upp til hópa en ekki láta þér bregða í brún þó ýmsir leggi þig í einelti fyrst um sinn.
Pakkar inn sprengju
Ég veiti þér þennan pakka að gjöf. Ekki opna hann fyrr en ég hef yfirgefið herbergið
Borar í nefið á þýskaranum og klínir afrakstrinum í hárið hans
Þar setti ég inn skilaboð einstaka sinnum, en hætti svo.
Ahh, snjall þessi. Hann ætlar að komast fram hjá busun með bellibrögðum...
Sérdeilis ekki. Þú ert vel að máli farinn og kurteis, en svona brögð líðast ekki. Dregur upp bogann Hlauptu í nokkra hringi fyrir mig, ég þarf að æfa mig.
Svona Gunnar minn, ekki vondur við nýliðann. Hann virðist fínn.
Stelur hjálminum hans Gunnars og setur hann á sinn eiginn haus
Dansar
Þú ferð þó ekki að skjóta á nafna þinn? Günther og Gunnar eiga samfornnorrænan forföður í nafninu Gunhar (eða hvernig sem það var skrifað), svo við erum nafnar.
Blessaður Gütti Zimm og velkominn.
Svona Gunnar minn, ekki vondur við nýliðann. Hann virðist fínn.
Stelur hjálminum hans Gunnars og setur hann á sinn eiginn haus
Dansar
Jæja, allt í lagi þá, ég skal gera það fyrir þig. Vertu velkominn Günther, vonandi líkar þér vistin.
Og Furða, fyrst þú ert með hjálminn, ekki gætirðu reynt að taka þessi asnalegu horn af honum, ég þoli þau ekki.
Þú ferð þó ekki að skjóta á nafna þinn? Günther og Gunnar eiga samfornnorrænan forföður í nafninu Gunhar (eða hvernig sem það var skrifað), svo við erum nafnar.
Já er það já. Athyglisvert. En segðu mér eitt, hvert er álit þitt á þessum drykk? Réttir Günther mjalt
Ekki málið!
Étur hornin
Heldur áfram að dansa
Þakka þér kærlega fyrir, þetta er miklu betra. Byrjar að dansa sjálfur
Ef það er blanda af miði og malti, þá er hann afbragð. Svo gæti hann líka verið afrakstur mjalta, og sá drykkur er líka góður.
Gefur frá sér vellíðunarstunu
Vjer bjóðum yður velkominn hingað á Gestapó (þó með með smá fyrirvara) Bætir nafni á listann yfir þá er eigi er vitað hvort telja beri til óvina ríkisins eður ei. Kemur fyrir eftirlitsmyndavjelum og hlerunartækjum út um allt.
Ef það er blanda af miði og malti, þá er hann afbragð. Svo gæti hann líka verið afrakstur mjalta, og sá drykkur er líka góður.
Gefur frá sér vellíðunarstunu
Hvur... jahérnahér. Horfir á Günther Veistu, ég held að okkur eigi eftir að koma ágætlega saman.
Grunar Günther um græsku, telur hann vera með Glúmsheilkennið
Vertu velkominn. Ekki mun ég gera þér neina stórkostlega grikki nema þú vinnir þér þá inn